Vatnakerfi Blöndu 2021 – Seiðarannsóknir, stangveiði og göngufiskur. HV 2022-37

Nánari upplýsingar
Titill Vatnakerfi Blöndu 2021 – Seiðarannsóknir, stangveiði og göngufiskur. HV 2022-37
Lýsing

Í skýrslunni eru birtar niðurstöður seiðarannsókna og stangaveiði í Blöndu og Svartá sumarið 2021, auk fiskgengdar um fiskteljara og mælinga á vatnshita í Blöndu í Ennisflúðum. Þéttleiki og ástand seiða var kannað með rafveiðum í júlí. Laxaseiði veiddust á öllum stöðvum í Blöndu og fimm af sex stöðvum í Svartá, auk bleikju- og urriðaseiða. Laxaseiðin voru vorgömul til þriggja ára. Meðalvísitala allra aldurshópa laxaseiða í Blöndu var 44,2 seiði á 100 m2, en 19,7 seiði á 100 m2 ef stöð við Eldjárnsstaði er ekki reiknuð með. Þetta er nokkuð hærri vísitala en 2018-2020. Samanlögð meðalvísitala allra aldurshópa laxaseiða fyrir allar stöðvar í Svartá var 21,9 seiði á 100 m2. Þetta er mikil breyting frá árinu 2020, þegar vísitalan var aðeins 5,3 seiði á 100 m2.

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfurit Haf- og vatnarannsóknir
Útgáfuár 2022
Blaðsíður 33
Útgefandi Hafrannsóknastofnun
Leitarorð lax, bleikja, seiðarannsóknir, teljari, vatnshiti, veiði, Blanda, Svartá, Blöndulón, Ennisflúðir
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?