Vatnakerfi Blöndu 2018 - Seiðarannsóknir, stangaveiði og göngufiskur. HV 2019-33

Nánari upplýsingar
Titill Vatnakerfi Blöndu 2018 - Seiðarannsóknir, stangaveiði og göngufiskur. HV 2019-33
Lýsing

skýrslunni er gerð grein fyrir niðurstöðum seiðarannsókna og stangaveiði í Blöndu og Svartá sumarið 2018, auk fiskgengdar um fiskteljara í Ennisflúðum og mælinga á vatnshita í Blöndu. Þéttleiki og ástand seiða var kannað með rafveiðum í Blöndu og Svartá í júlí. Laxaseiði veiddust á öllum stöðvum í Blöndu og voru þau vorgömul til þriggja ára. Bleikjuseiði veiddust á tveimur stöðvum og urriðaseiði á þremur neðstu stöðvunum. Laxaseiði veiddust á öllum sex stöðvunum í Svartá, auk bleikjuseiða á þremur stöðvum og urriðaseiða á tveimur stöðvum. Vísitala seiðaþéttleika mældist talsvert lægri í Blöndu árið 2018 en næstu tvö ár á undan, en var ekki lág í samanburði við eldri mælingar. Í Svartá hefur vísitala seiðaþéttleika verið nokkuð stöðug frá 2012, ef utan er skilið árið 2016 þegar vísitalan var um tvöfalt hærri en önnur ár.

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Ingi Rúnar Jónsson
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfuár 2019
Blaðsíður 28
Leitarorð lax, bleikja, seiðarannsóknir, teljari, vatnshiti, veiði, Blanda, Svartá, Blöndulón, Ennisflúðir
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?