Rannsóknir á fiskistofnum nokkurra áa á Norðausturlandi 2022. HV2023-14

Nánari upplýsingar
Titill Rannsóknir á fiskistofnum nokkurra áa á Norðausturlandi 2022. HV2023-14
Lýsing

Sameiginlegar rannsóknir í nokkrum ám á Norðausturlandi hafa nú staðið í sjö ár. Farið var í
seiðarannsóknir í Vesturdalsá og Selá í Vopnafirði, Svalabarðsá, Sandá og Hölkná í Þistilfirði og
Miðfjarðará og Litlu-Kverká í Bakkaflóa. Seiðarannsóknir samanstanda af greiningu á þéttleika eftir
árgöngum, meðallengd, meðalþyngd og holdastuðli. Gönguseiðagildru var komið fyrir í Vesturdalsá,
þar sem gönguseiði voru mæld og hluti þeirra merkt áður en þeim var sleppt. Teljarar voru staðsettir
í Vesturdalsá, Miðfjarðará og Selá. Lestur og greining var framkvæmd á hreistri sem barst úr
Miðfjarðará og Selá. Samantekt á upplýsingum úr veiðibókum var gerð fyrir fyrrnefnd vatnsföll sem
og fyrir Hölkná í Bakkaflóa og Hafalónsá í Þistilfirði. Hitamælingar voru gerðar í hluta af ánum
.

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfuár 2023
Blaðsíður 129
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?