Rannsóknir á fiskistofnum nokkurra áa á Norðausturlandi 2021 / Research on fish stocks in several rivers at North-East Iceland 2021. HV 2022-13

Nánari upplýsingar
Titill Rannsóknir á fiskistofnum nokkurra áa á Norðausturlandi 2021 / Research on fish stocks in several rivers at North-East Iceland 2021. HV 2022-13
Lýsing

Sameiginlegar rannsóknir í nokkrum ám á Norðausturlandi hafa nú staðið í átta ár. Farið var í seiðarannsóknir í Vesturdalsá og Selá í Vopnafirði, Hölkná í Bakkaflóa og Hafralónsá og Kverká í Þistilfirði. Seiðarannsóknir samanstanda af greiningu á þéttleika eftir árgöngum, meðallengd, meðalþyngd og holdastuðli. Gönguseiðagildru var komið fyrir í Vesturdalsá, þar sem gönguseiði voru mæld og hluti þeirra merkt áður en þeim var sleppt. Teljarar voru staðsettir í Vesturdalsá, Miðfjarðará og Selá. Lestur og greining var framkvæmd á hreistri sem barst úr Miðfjarðará. Samantekt á upplýsingum úr veiðibókum var gerð fyrir fyrrnefnd vatnsföll sem og fyrir Miðfjarðará í Bakkaflóa og Sandá, Hölkná og Svalbarðsá í Þistilfirði. Hitamælingar voru gerðar í hluta af ánum.

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfurit Haf- og vatnarannsóknir
Útgáfuár 2022
Blaðsíður 116
Útgefandi Hafrannsóknastofnun
Leitarorð Vesturdalsá, Selá, Svalbarðsá, Sandá, Hölkná í Þistilfirði, Hölkná í Bakkafirði, Miðfjarðará, Hafralónsá, seiðarannsóknir, gönguseiði, fiskteljarar, Norðausturland
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?