| Lýsing |
Ágrip
Vistfræðilegt ástand vatnshlota er metið með því að rannsaka og meta líffræðilega, eðlisefnafræðilega og vatnsformfræðilega gæðaþætti og er markmiðið að tryggja a.m.k. gott ástand þeirra. Í þessari skýrslu er sett fram matskerfi fyrir vatnsformfræði straum- og stöðuvatna og byggir það á aðferðum Norðmanna. Matskerfið hefur verið kynnt í fyrri skýrslum (Katrín Sóley Bjarnadóttir o.fl., 2020; Svava Björk Þorláksdóttir o.fl., 2023) og er þessari skýrslu sem nú er kynnt ætlað að taka við að fyrri útgáfum um matskerfið. Kerfið metur breytingar á vatnsformfræði af mannavöldum og er matið staðbundið, þ.e. aðstæður í vatnshloti eru bornar saman við aðstæður sem ríktu þar áður en breytingar voru gerðar. Áður en hægt er að flokka vatnshlot með tilliti til vatnsformfræði þurfa ýmis gögn og upplýsingar að liggja fyrir, svo sem samfelldar vatnshæðar- og rennslismælingar, fjöldi hindrana/stíflna í farvegum, dýptarkort stöðuvatna og upplýsingar um stærð strandsvæða í stöðuvötnum. Vatnsformfræði er metin með öllum viðeigandi matsþáttum sem endurspegla gæðaþættina vatnsbúskap, formfræði og samfellu. Niðurstaðan er sett fram sem gæðavísir, sem gefur til kynna umfang vatnsformfræðilegra breytinga í vatnshlotinu. Áhersla er lögð á mikilvægi sérfræðiálits við mat á vatnsformfræði, auk þess sem mikilvægt er að þekkja áhrif sem breytt vatnsformfræði kann að hafa á vatnavistkerfi. Með samræmdum aðferðum við mat á vatnsformfræði vatnshlota og þekkingu á sambandi vatnsformfræði og vatnavistkerfa er hægt að minnka líkur á hnignun vatnalífs og vatnsgæða af mannavöldum. Einnig er hægt að stuðla að viðeigandi mótvægisaðgerðum þar sem breytingar á vatnsformfræði hafa þegar raskað vatnavistkerfum.
Abstract
The ecological status of water bodies is assessed by examining and evaluating biological, physico-chemical, and hydromorphological quality elements. This report presents a guide for assessing the hydromorphological quality in rivers and lakes. The procedures are based on Norwegian methods. The system evaluates site-specific anthropological changes in hydromorphology, meaning that the conditions in the water body are assessed based on knowledge of the conditions that existed before any changes were made. Various data and information must be available before it is possible to assess the hydromorphology of a water body. That includes continuous water level and flow measurements, the number of barriers/dams in the watercourse, as well as bathymetric maps and information on littoral zones in lakes. Hydromorphology is assessed using all relevant parameters that reflect the hydromorphological quality elements hydrology, morphology, and continuity. The result is presented as a quality index that corresponds to the extent of hydromorphological changes. The importance of expert knowledge when assessing the hydromorphology of water bodies is highlighted, especially on possible impacts of hydromorphological changes on aquatic ecosystems. With standardized methods for assessing the hydromorphology of water bodies, and knowledge of the relationship between hydromorphology and aquatic ecosystems, it is possible to reduce the likelihood of degradation of aquatic life and water quality due to human activities in and around water bodies. Furthermore, it is possible to take appropriate mitigation measures where aquatic ecosystems have already been disrupted because of hydromorphological changes. |