Mat á botngerð Jökulsár á Dal með tilliti til uppeldis laxaseiða
| Nánari upplýsingar |
| Titill |
Mat á botngerð Jökulsár á Dal með tilliti til uppeldis laxaseiða |
| Lýsing |
Ágrip
Jökulsá á Dal (Jökla) er um 150 km löng, með upptök í Brúarjökli og fellur til sjávar í Héraðsflóa. Miklar breytingar urðu á rennsli og aurburði Jöklu með byggingu Kárahnjúkastíflu. Lífræn framleiðsla, útbreiðsla og fjöldi náttúrulegra laxaseiða hefur aukist. Nýting Jöklu til stangveiði hefur einnig aukist mjög á síðustu árum samfara bættum skilyrðum til laxveiði og aukningu í fjölda veiddra laxa. Í júlí árin 2023 og 2024 var flatarmál og botngerð í Jökulsá á Dal og helstu hliðaráa kortlögð. Með kortlagningu á botngerð og flatarmáli fást mikilvægar upplýsingar um stærð einstakra svæða innan vatnsfalla og möguleika þeirra sem uppeldis og framleiðslusvæði seiða. Farið var með fiskgenga hluta vatnakerfisins og farveginum skipt í einsleita kafla með hliðsjón af botngerð og straumlagi. Á hverjum kafla var botngerð, straumlag og dýpi skrásett á þversniðum í farvegi vatnsfallanna eftir fyrir fram ákveðnu kerfi. Framleiðslugeta hvers kafla var síðan reiknuð sem fjöldi s.k. framleiðslueininga. Flatarmál fiskgenga hluta Jöklu mældist 5.484.609 m2 og flatarmál hliðaráa 951.023 m2. Framleiðslueiningar Jöklu reiknuðust 124.556 og framleiðslueiningar hliðaráa 27.558. Botngerð og dýpi einstakra kafla var mjög breytilegt sem endurspeglast í mismunandi mati á hversu vel einstakir kaflar henta fyrir uppeldi laxaseiða. Efstu svæði Jöklu og hliðaráa eru í allt að 400 m hæð yfir sjávarmáli og um 115 km vegalengd frá ós. Eftir á að koma í ljós hversu hátt í vatnakerfinu lax nær að hrygna og laxaseiði að alast upp. Niðurstöður botngerðarmatsins í Jöklu gefa upplýsingar um gæði einstakra svæða til framleiðslu laxaseiða og við samanburð við önnur vatnasvæði sem metin hafa verið með sambærilegum hætti. Einnig nýtist matið til að reikna framleiðslugetu árinnar fyrir einstakar jarðir sem oft er lagt til grundvallar við skiptingu arðs af veiði á milli veiðiréttarhafa.
Abstract
Jökulsá á Dal (Jökla) is 150 km long river, originating in Brúarjökull glacier and flowing into the sea at Héraðsflói. Major changes in the river´s discharge and sediment transport occurred following the construction of the Kárahnjúka Dam. Opportunities for angling in Jökla have improved in recent years, with increasing number of salmon being caught. The distribution and number of salmon juveniles have also increased. In July 2023 and 2024, the size of the wetted area and the composition of bottom substrate in the river and its main tributaries were measured to assess their capacity for salmon juvenile production. The bottom substrate and wetted area provide information on the size and characteristics of individual habitat units within the river system. The wetted area of Jökla was measured 5,484,609 m2, and the area of the tributaries 951,023 m2. Calculated production units for Jökla were 124,556 and for the tributaries 27,558. Substrate composition and water depth varied significantly between sections, which is reflected in differing assessments of habitat suitability for salmon juveniles. The uppermost areas of Jökla and its tributaries are at 400 m above sea level and are located about 115 km from the estuary. It remains uncertain how far up the river system salmon can migrate and spawn and whether juveniles can survive in these upper reaches. The results of the habitat assessment in Jökla provide valuable information on the quality of different river sections for salmon juvenile production and allow comparison with other river systems assessed using same methods. |
| Skráarviðhengi |
Ná í viðhengi |
| Flokkun |
| Flokkur |
Haf- og vatnarannsóknir (2016-) |
| Útgáfurit |
Haf- og vatnarannsóknir |
| Útgáfuár |
2026 |
| Tölublað |
19 |
| Blaðsíður |
17 |
| Útgefandi |
Hafrannsóknastofnun |
| ISSN |
2298-9137 |
| Leitarorð |
Lax, búsvæði, botnmat, framleiðslugildi, framleiðslueiningar, Jökulsá á Dal, Atlantic salmon, habitat, substrate assessment, production index, production units, Jökulsá á Dal. |
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin