Fiskrannsóknir á vatnasvæði Tungufljóts í Biskupstungum árið 2022. HV 2022-42

Nánari upplýsingar
Titill Fiskrannsóknir á vatnasvæði Tungufljóts í Biskupstungum árið 2022. HV 2022-42
Lýsing

Rannsóknin sem hér er greint frá er hluti af verkefni sem hófst árið 2014 og er áætlað til 10 ára. Markmið þess er að fá mat á árangur fiskræktar í Tungufljóti þar sem áhersla er lögð á að fylgjast með vexti og viðgangi laxfiska á svæðinu ofan við fiskstigann við fossinn Faxa. Hér er greint frá niðurstöðum 2022. Á árinu 2022 var sleppt 30 þúsund gönguseiðum laxa, sem er sama magn og verið hefur undanfarin ár. Stangveiðin árið 2022 var 526 laxar sem er 35,6% aukning á milli ára. Upp stigann við Faxa voru taldir 221 lax sem er talsverð aukning frá fyrra ári en þá voru taldir 100 laxar upp. Uppeldi villtra laxaseiða á svæðinu ofan við Faxa er enn að mestu bundið við Einholtslæk og Tungufljót neðan við hann. Athygli vakti að við flúð ofan við Einholtslæk var að finna laxaseiði á fyrsta og öðru ári, og í meira mæli en áður. Samkvæmt greiningu á hreistri voru 11% veiddra laxa úr veiði í Tungufljóti af náttúrulegum uppruna eða úr smáseiðasleppingum aðrir voru úr gönguseiðasleppingum.

Skráarviðhengi Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Haf- og vatnarannsóknir (2016-)
Útgáfurit Haf- og vatnarannsóknir
Útgáfuár 2022
Blaðsíður 12
Útgefandi Hafrannsóknastofnun
Leitarorð Tungufljót, Faxi, lax, urriði, bleikja, seiðarannsóknir, aldur, fiskrækt, heimtur, örmerki, fiskteljari, laxveiði, seiðasleppingar
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?