| Lýsing |
Ágrip
Seiðabúskapur var vaktaður, gönguseiði veidd í gildru í Kálfá og þau talin mæld og merkt. Tekið var hreistur af löxum og sjóbirtingi á göngu úr sjó til aldursgreiningar. Fiskur var talinn með fiskteljurum í Þjórsá við Búða og í Kálfá. Vatnshiti var mældur með hitasíritum og veiðiskýrslum safnað. Framkvæmt var stofnmat á gönguseiðum laxa, sjóbirtinga og laxa á leið úr sjó. Árið 2025 voru skráðir 4.023 laxar veiddir á vatnasvæðinu (4.279 laxar árið 2024), 582 urriðar (470) og 7 bleikjur (5). Samtals voru 1.042 gönguseiði laxa merkt í Kálfá 2025 (826). Stofnmat á gönguseiðum í Kálfá gaf á bilinu 11.259 – 16.259 gönguseiði fyrir árin 2022 – 2024 og var 2024 árgangurinn stærstur. Stofnstærð Þjórsárlaxa var metin vera 10.960 göngulaxar árið 2025 (8.125). Stofnstærð sjóbirtings á vatnasvæðinu var metin vera 830 fiskar yfir 50 cm að stærð (559 fiskar). Veiðiálag á laxi var metið vera alls 34% árið 2025 (49%) en þegar veiðiálag var skoðað eftir sjávarárum var það nokkuð hátt fyrir stórlax og líklega ósjálfbært. Seiðarannsóknir sýndu að þéttleiki laxaseiða á viðmiðunarstöðvum ofan Búða fari lækkandi en sömu þróunar virðist ekki gæta neðan Búða. Í fiskteljara við Búða töldust 1.135 laxar hafa gengið upp fyrir hann (690) og í fiskteljara í Kálfá voru taldir 402 laxar árið 2025 sem er mun meiri fjöldi en var talinn á árunum 2021 -2024. Í skýrslunni eru lagðar til endurbætur á teljaraaðstöðunni í Kálfá í þágu rannsókna á fiskstofnum Þjórsár.
Abstract
Juvenile densities of salmonids were monitored, smolts were counted, measured and micro-tagged and adult salmon and sea trout age analyzed. Fish was counted by fish counters in the tributary Kálfá and in Búði fishway in R. Þjórsá and stock size of salmon and sea trout calculated. Water temperature was measured with data loggers and fishing reports were collected. Stock size of Atlantic salmon smolts (Salmo salar), and salmon and sea trout (Salmo trutta) adults were calculated. In 2025 a total of 4,023 salmon were caught in the Þjórsá watershed (4,279 salmon in 2024), 582 brown trout (470) and 7 charr (5). A total of 1,042 salmon smolts were tagged in Kálfá tributary in 2025 (826). A stock assessment of salmon smolt in Kálfá tributary gave a range of 11,259 – 16,259 smolts for the years 2022 – 2024, with the 2024 cohort being the largest. The stock size of salmon in R. Þjórsá watershed was estimated to be 10.960 adult salmon in 2025 (8,125). The stock size of sea trout in R. Þjórsá was estimated to be 830 fish over 50 cm in length (559 fish). Fishing effort on salmon was estimated to be a total of 34% in 2025 (49%), but when fishing effort was examined by sea years, it was quite high for 2SW salmon and probably unsustainable. Electro-fishing showed that the density of salmon juveniles at reference stations above Búði is decreasing, but the same trend does not appear to be observed below Búði. The fish-counter at Búði counted that 1,135 salmon had migrated above the counter (690) and in Kálfá some 402 salmon were counted, which is a much larger number than was counted in the years 2021 – 2024. The report proposes improvements to the counting facilities in Kálfá for the benefit of research on the fish stocks of the Þjórsá River. |