Enduruppbygging Snæfellsnesvegar (54) um Skógarströnd — áhrif á lífríki ferskvatns og veiðinýtingu
| Nánari upplýsingar |
| Titill |
Enduruppbygging Snæfellsnesvegar (54) um Skógarströnd — áhrif á lífríki ferskvatns og veiðinýtingu |
| Lýsing |
Ágrip
Vegagerðin fyrirhugar uppbyggingu á Snæfellsnesvegi (54) um Skógarströnd. Tengt þeirri framkvæmd þarf að endurbyggja brýr yfir vatnsföll á svæðinu. Hér er lýst úttekt á útbreiðslu og tegundasamsetningu fiska í vatnsföllum sem gætu orðið fyrir áhrifum. Tekin eru saman gögn um veiðinýtingu, þéttleika seiða, botngerð og eðlisþætti. Áhrif ræsa á fiskgengd var einnig metin.
Allar tegundir laxfiska finnast á svæðinu og er veiði stunduð í stærri vatnsföllum. Lax finnst í stærri vatnsföllum, urriði nánast alls staðar og bleikja vestast á svæðinu þar sem lindaráhrifa gætir. Botngerð og umhverfisskilyrði henta laxfiskum almennt vel. Talið er að stærð vatnsfalla (meðalrennsli / stærð vatnasviða) og hitastig ráði mestu um útbreiðslu tegunda.
Fyrirhuguð brúarstæði eru á svæðum þar sem framkvæmdir eru taldar hafa lítil langtímaáhrif á lífríkið. Brúarstæði í Laxá á Skógarströnd, Setbergsá og Stóru Langadalsá lenda nálægt veiðistöðum og þarf því að hafa náið samstarf við veiðifélög viðkomandi vatnsfalla við hönnun þeirra. Almennt er ekki talið að brýr hafi slæm áhrif á lífríki og veiðinýtingu.
Úttekt á ræsum benti ekki til að þau hefðu áhrif á fiskgengd en lagt var til að ræsi í Úlfarsfellsá og Vörðulæk verði endurnýjuð. Fyrri rannsóknir benda til mun alvarlegri áhrifa ræsa en brúa á lífríki straumvatna.
Mælingar á eðlisþáttum bentu til almenns góðs ástands vatnsfalla á fyrirhuguðu framkvæmdarsvæði. |
| Skráarviðhengi |
Ná í viðhengi |
| Flokkun |
| Flokkur |
Haf- og vatnarannsóknir (2016-) |
| Útgáfurit |
Haf- og vatnarannsóknir |
| Útgáfuár |
2026 |
| Tölublað |
33 |
| Blaðsíður |
28 |
| ISSN |
2298-9137 |
| Leitarorð |
lax, urriði, bleikja, ræsi, brýr, Skógarströnd, |
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin