Ástandsflokkun straumvatna út frá tegundasamsetningu kísilþörunga
| Nánari upplýsingar |
| Titill |
Ástandsflokkun straumvatna út frá tegundasamsetningu kísilþörunga |
| Lýsing |
Ágrip
Í þessari skýrslu er gerð grein fyrir niðurstöðum rannsóknar á kísilþörungum á hörðum botni í straumvötnum á Íslandi. Rannsóknin var gerð fyrir Umhverfisstofnun og er hluti af vinnu vegna stjórnar vatnamála, sem miðar að því að skilgreina aðferðir til að flokka ferskt yfirborðsvatn á Íslandi út frá vistfræðilegu ástandi þess. Niðurstöður greininganna voru notaðar til að reikna út gildi nokkurra umhverfisvísa, eða kísilþörungavísa, sem geta sagt til um ástand straumvatna. Áhersla var lögð á nota sambærilegar aðferðir og notaðar eru í nágrannalöndum okkar. Niðurstaða rannsóknarinnar bendir til að hægt sé að nota tegundasamsetningu kísilþörunga við ástandsflokkun straumvatna á Íslandi. Hér er lögð fram tillaga að ástandsflokkun straumvatna út frá útreiknuðum kísilþörungavísi, Specific Pollution Sensitivity Index (IPS), sem byggir á tegundasamsetningu kísilþörunga á hörðum botni í straumvötnum, og einkunnum fyrir einstakar tegundir sem lýsa viðkvæmni þeirra fyrir breytingu á umhverfisaðstæðum. Sett eru fram viðmiðunargildi fyrir IPS kísilþörungavísinn og ástandsflokkunarkerfi sem byggir á kísilþörungavísinum IPS. Einnig eru gefin upp vistfæðileg gæðahlutföll fyrir þessi mörk. Vinna við útgáfuna er studd af LIFE Icewater (nr. 101147387).
Abstract
This report presents the results of a study on benthic diatoms on hard substrate in rivers in Iceland. The study was carried out for the Environment Agency of Iceland and is a part of work related to the WFD in Iceland, which aims to define methods for classifying fresh surface water in Iceland according to its ecological status. The results of the diatom analyses were used to calculate values of few environmental indices, which have been used worldwide to indicate the ecological state of freshwaters with respect to diatom species. In the study we focused on methods that are like those used in our neighbouring countries. The results of the study indicate that diatom species composition can be used to classify the ecological status of rivers in Iceland. This report presents a proposed classification of river ecological status based on the calculated Specific Pollution Sensitivity Index (IPS). The IPS is based on the species composition of benthic diatoms on hard substrates in rivers, together with sensitivity ratings for individual species that describe their sensitivity to changes in environmental conditions. Reference values are proposed for the IPS diatom index, along with an ecological status classification system based on the IPS. Reference values for IPS in rivers and classification system is presented together with ecological quality ratio for class boundaries is also given. This publication was supported by LIFE Icewater (grant no. 101147387).
|
| Skráarviðhengi |
Ná í viðhengi |
| Flokkun |
| Flokkur |
Haf- og vatnarannsóknir (2016-) |
| Útgáfurit |
Haf- og vatnarannsóknir |
| Útgáfuár |
2026 |
| Tölublað |
37 |
| Blaðsíður |
38 |
| ISSN |
2298-9137 |
| Leitarorð |
vistfræðileg ástandsflokkun, umhverfisvísar, kísilþörungavísar, IPS, TDI, stjórn vatnamála, gæðaþættir, viðmiðunargildi, vistfræðilegt gæðahlutfall, EQR, Ecological classification, environmental indexes, diatom index, IPS, TDI, Water Framework Directive, quality elements, reference values, ecological quality ratio, EQR. |
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin