Vistfræðileg samkeppni milli langreyða, steypireyða og blendinga þeirra

Blendingurinn sem hefur haldið sig að sumarlagi norður af Skjálfanda. Mynd: Gentle Giants, Húsavík. Blendingurinn sem hefur haldið sig að sumarlagi norður af Skjálfanda. Mynd: Gentle Giants, Húsavík.

Tilvist blendinga milli mismunandi tegunda hvala hefur verið staðfest á undanförnum árum. Ýmsu er samt ósvarað um blendingana svo sem um vistfræðilega stöðu þeirra og áhrifa á vistkerfi sjávar. Innan ættar reyðarhvala (Balaenopteridae) eru flest staðfest tilfelli blendinga milli steypireyða og langreyða. Það vekur upp spurningar um viðkomu tegundanna, sérstaklega á það við um steypireyð sem er í útrýmingarhættu vegna mikillar ofveiði fyrr á tímum. Í nýlegri vísindagrein er birtist í Marine Mammal Science, rannsökuðu vísindamenn Hafrannsóknastofnunar, í samstarfi við Háskólann í Barcelona fæðuvistfræðilega skörun milli steypireyðar, langreyðar og blendinga þeirra.

Lesið í skíðin

Í rannsókninni var notast við formgerð skíða, farhegðun, landfræðilega dreifingu og hlutfall stöðugra samsæta köfnunarefnis (δ15N), kolefnis (δ13C) og brennisteins (δ34S) í vaxtarlögum í langsniði skíða úr fimm langreyðum, tveimur steypireyðum og þremur blendingum þessara tegunda. δ15N gildi köfnunarefnis hækkar með hækkandi fæðuþrepi bráðarinnar og það er því mikið notað sem mælikvarði á fæðuþrep afræningja í fæðukeðjunni. δ13C gildi sýna veikari aukningu eftir fæðuþrepi og eru túlkuð meira sem vísbendingar fæðusvæði og kolefnisuppsprettu bráðar. Yfirleitt eru hærri gildi í strandlægum sjó en í úthafinu og jafnframt er algengara að lægri δ13C gildi mælist í vistkerfi sjávar á hærri breiddargráðum. Hlutföll stöðugra samsæta brennisteins (δ34S) veita viðbótar vistfræðilegar upplýsingar þar sem umhverfi á opnu hafi sýnir almennt einsleit og tiltölulega há δ34S gildi vegna mikillar blöndunar vatnsmassa. Strand- og botnsjávar lífkerfi sýna hinsvegar oft lægri og breytilegri δ34S gildi sem aftur eru tengd staðbundnum brennisteins hringrásarferlum.

Blendingarnir líkjast steypireyðum

Niðurstöður rannsóknanna benda til þess að bæði langreyður og steypireyðar nærast aðallega á ljósátu sem þar af leiðandi leiðir til verulegrar vistfræðilegrar skörunar, þó að langreyður hafi tilhneigingu til að sýna hærri δ15N gildi í samræmi við stöku neyslu bráðar með hærri vistfræðilega stöðu (fiska). Þó að blendingar tegundanna skarist bæði í fæðuþrepi og notkun búsvæða við báðar foreldrategundirnar, líkjast blendingarnir meira steypireyðum. Það er hugsanlega vegna lærðrar hegðunar í gegnum móður þar sem flestir blendinganna sem voru rannsakaðir eiga steypireyðar að móður.

Þó að munur á notkun búsvæða eða farhegðun geti dregið úr beinni vistfræðilegri samkeppni, gæti veruleg skörun fæðuvals sem sést hefur milli steypireyða og langreyða verið hagfeld blendingum og hugsanlega stuðlað að minni viðkomu steypireyða með afleiðingum á fjölgun í stofninum.

Mynd: Samsætubygging steypireyða (blár), langreyða (rauður) og blendinga (appelsínugula), byggð á δ15N, δ13C og δ34S gildum. (A–C) Tvímyndir af einstökum meðaltölum (±staðalfrávik) fyrir hverja paraða samsætusamsetningu. (D–F) Eftir dreifing meðaltala, e: Posterior distributions, á tegundastigi og 95% líkindabil e: credible intervals, fyrir hverja samsætu. (G–I) Eftirá-líkinda sporbaugar (40% líkindasvæði) sem tákna samsætusvæði í tvívídd.

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?