
Hafrannsóknastofnun ásamt Umhverfis- og orkustofnun héldu Eurolag ráðstefnuna í húsnæði Hafró í Hafnarfirði þann 18.-21. ágúst sl. en þema ráðstefnunnar sneri að vistkerfisrannsóknum strandsjávar- og sjávarlóna. Sjá dagskrána hér.
Ráðstefnan var haldin undir regnhlíf LIFE – ICEWATER verkefnisins sem er stórt Evrópusambandsverkefni sem Hafrannsóknastofnun tekur þátt í, ásamt fjölmörgum samstarfsstofnunum, sveitarfélögum og fleiri aðilum.
Á ráðstefnunni var sérstök áhersla lögð á áhrif hlýnunar sjávar, útbreiðslu framandi tegunda og hvernig þessir þættir hafa áhrif á vistfræðilegt ástand strandlóna og strandsvæða. Einnig var fjallað um vöktun, vernd, stjórnun og mat á ástandi vatnshlota, auk nýjustu rannsókna og reynslu af framkvæmd vatnatengdra verkefna víða um Evrópu.
Í tengslum við ráðstefnuna var einnig haldin vinnustofa með eistneska sjávarlíf- og fiskifræðingnum Henn Ojaveer sem sem fór yfir skilgreiningar á vistfræðilegu ástandi vatnshlota með fókus á árósa- og strandlónahlot.
Myndirnar voru teknar á meðan á ráðstefnunni stóð en fleiri myndir má finna á Facebook síðu Hafrannsóknastofnunar.