Þórunn í síldar- og sjórannsóknum

Þórunn Þórðardóttir  HF 300 að sigla til heimahafnar. Skipið sinnir nú síldar- og sjórannsóknum. Þórunn Þórðardóttir HF 300 að sigla til heimahafnar. Skipið sinnir nú síldar- og sjórannsóknum.

Rannsóknaskipið Þórunn Þórðardóttir fór til síldar- og sjórannsókna þann 12. október og gert er ráð fyrir rúmlega þriggja vikna leiðangri kringum landið.

Sjórannsóknir munu fara fram á föstum sniðum sem heimsótt eru 3-4 sinnum á ári í rannsóknaleiðöngrum stofnunarinnar til að rannsaka eðlis- og efnafræðilegt ástand sjávar. Síldarmælingarnar snúa bæði að ungsíld og fullorðinni síld.

Vísitölur um magn nýliðunar verða nýttar fyrir stofnmat að ári

Í fjörðum vestan og norðan lands verða gerðar bergmálsmælingar á magni ungsíldar samfara sýnatöku. Af þeim loknum verða gerðar sambærilegar mælingar á magni fullorðinnar síldar austur-, suðaustur og suður af Íslandi. Vísitölur um magn nýliðunar og vísitölur um stærð veiðistofnsins frá leiðangrinum verða nýttar við stofnmat og veiðiráðgjöf fyrir næsta ár.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?