Þórunn heldur til umhverfisrannsókna í hafi

Áhöfn og rannsóknafólk um borð í Þórunni Þórðardóttur var spennt að leggja úr höfn í góða veðrinu. Áhöfn og rannsóknafólk um borð í Þórunni Þórðardóttur var spennt að leggja úr höfn í góða veðrinu.


Rannsóknaskipið Þórunn Þórðardóttir leggur af stað í dag 20. maí í árlegan vorleiðangur Hafrannsóknastofnunar þann og er áætlað að honum ljúki þann 3. júní nk.

Leiðangurinn er liður í langtímavöktun á hita og seltu, næringaefnum í sjó og eru jafnframt framkvæmdar mælingar á plöntusvifi (gróðri) og dýrasvifi (átu) á hafsvæðinu kringum Ísland. Árferðisrannsóknir af þessu tagi hafa farið fram nánast óslitið síðan uppúr 1950. 

Umhverfisástand sjávar er kannað á föstum staðsetningum út frá landinu og gerðar mælingar með síritandi mælitækjum á siglingaleið skipsins líkt og gert er í tveimur til þremur 2-3 öðrum árstíðabundnum leiðöngrum árlega. Í vorleiðangri er einnig magn gróðurs mælt með blaðgrænumælingum og líffræðileg fjölbreytni plöntusvifs er rannsökuð með smásjá og erfðafræði. Magn, útbreiðsla og tegundasamsetning átu er könnuð með háfasýnum sem gefa góða mynd af smærri átu. Samhliða því er bergmálstækni notuð til að afla upplýsinga um stærri átu á hafsvæðinu.

Í þessum leiðangri verður fjöldi fjarða á vestur- og austurlandi verða heimsóttir til að meta umhverfisáhrif sjókvíaeldis og undirbyggja mat á burðarþoli fjarða. 

Einnig verður sýnum safnað í þágu vatnarannókna í verkefninu LIFE-Icewater, þar sem lögð er áhersla á að safna upplýsingum sem hægt er að nota til að ástandsmeta vatnshlot. Að lokum er umhverfiserfðafræðisýnum safnað fyrir samstarfverkefni við rannsóknastofnanir í Færeyjum og Skotlandi sem nefnist NordiCoast – Establishing a baseline on coastal biodiversity in the North Atlantic.

Að venju er sýnum einnig safnað fyrir Geislavarnir ríkisins vegna vöktunar á magni geislavirkra efna í sjó og rekdufl frá NOAA þjónustað. Hægt er að fylgjast með leiðangri hér og fyrstu niðurstöður munu birtast hér á vefnum fljólega eftir að leiðangri lýkur.

Myndir á síðunni voru teknar af Erin Kathleen Redmond, Svanhildi Egilsdóttur og Söru Harðardóttur. 

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?