Þór Heiðar Ásgeirsson ráðinn forstöðumaður SHSÞ

Þór Heiðar Ásgeirsson Þór Heiðar Ásgeirsson

Þór Heiðar Ásgeirsson hefur verið ráðinn í stöðu forstöðumanns SHSÞ (Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna) og tekur til starfa 1.ágúst nk.

Þór hefur gengt stöðu aðstoðarforstöðumanns SHSÞ frá árinu 1999 og komið að stjórnun skólans, þróun hans og námskeiðahaldi í um tuttuga ára skeið. Þá var var hann starfandi forstöðumaður 2008 – 2009 í fjarveru forstöðumanns erlendis.  Þór hefur því yfirgripsmikla þekkingu á allri starfsemi skólans, þar með talið stjórnun, skipulagningu náms, fjármálum og starfsmannahaldi og hefur séð um gerð kennslu- þjónustu- og samstarfssamninga bæði innanlands og utan. Framtíðarsýn Þórs varðandi starfsemi skólans er skýr.

Þór er með tvöfalda meistaragráðu, M.Ed. í raungreinakennslu frá Boston University og M.Sc. í sjávarvistfræði frá University of Massachusetts.

Alls voru 11 umsækjendur um starfið og þar af voru 5 boðaðir í viðtal. Af þeim loknum var það einróma samþykkt af valnefnd að leggja til að Þór yrði boðið starfið. Tillaga þess efnis var samþykkt einróma af stjórn skólans 2.júlí.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?