Stofnmat og ráðgjöf á landsel 2021

Landselur. Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir. Landselur. Ljósm. Svanhildur Egilsdóttir.

Nýtt mat á stofnsstærð landsels við Ísland og ráðgjöf varðandi veiðar liggja nú fyrir. Hafrannsóknastofnun leggur til að beinar veiðar á landsel verði áfram takmarkaðar og að gripið verði til frekari aðgerða til að draga úr meðafla landsels við netaveiðar, til að stuðla að því að stofnstærð nái aftur stjórnunarmarkmiðum stjórnvalda. Jafnframt leggur stofnunin til að reynt verði að takmarka möguleg truflandi áhrif af athöfnum manna á landsel, sérstaklega yfir maí til ágúst þegar kæping og háraskipti eiga sér stað.

Hlekkur á ráðgjöf.

Ráðgjöf byggir á mati á stærð landselsstofnsins við Ísland sem Hafrannsóknastofnun, í samvinnu við Selasetur Íslands, hefur nýlega lokið vinnu við. Matið byggir á talningum sem fram fóru sumarið 2020.

Hlekkur á tækniskýrslu ráðgjafar.

Samkvæmt matinu er stofninn um 10,300 dýr sem er 69% færri dýr en árið 1980 þegar fyrstu talningar fóru fram. Matið sýnir um 9% fjölgun í stofninum frá árinu 2018 þegar sambærilegt stofnstærðarmat var síðast unnið. Benda niðurstöður undanfarinna ára til þess að stærð stofnsins sé að sveiflist nálægt sögulegu lágmarki. Samkvæmt stjórnunarmarkmiðum stjórnvalda fyrir landsel við Ísland skal lágmarks stofnstærð vera 12.000 selir. Niðurstöður stofnmatsins sem eru 14% undir þessum markmiðum krefjast því áframhaldandi aðgerða til að ná þeim.

Nánari upplýsingar um talningarnar 2020 eftir svæðum og í samanburði við fyrri ár má lesa í nýrri grein í ritröðinni Haf- og vatnarannsóknir.

Hlekkur á nýútkomna skýrslu um landsel.

 

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?