Sjávarútvegsskólinn kominn með nema eftir árs hlé

Haraldur Einarsson fræðir um veiðarfæri. Ljósm. Agnes Eydal. Haraldur Einarsson fræðir um veiðarfæri. Ljósm. Agnes Eydal.

Gró Sjávarútvegsskóli sem starfar undir hatti UNESCO hefur fengið nema að nýju eftir árs hlé vegna Covid19. Þetta er stærsti hópur sem komið hefur á vegum skólans og eru nemarnir víðs vegar að og koma frá 17 löndum.

Þriðjudaginn 14. september var hefðbundinn dagur brotinn upp og farin vettvangsferð í Tilraunaeldisstöðina að Stað við Grindavík þar sem starfsmenn stöðvarinnar, þeir Matthías, Agnar og Tómas tóku á móti hópnum og kynntu fyrir honum starfsemina. Stöðin vakti mikinn áhuga og útskýrðu starfsmennirnir hin ýmsu verkefni sem þar eru unnin. Fólkið var mjög áhugasamt og spurði mikið út í starfsemina.

Auk starfsmanna Sjávarútvegsskólans, þeirra Stefáns, Agnesar og Zaw var Haraldur Einarsson veiðarfærasérfræðingur með í för og leiddi fólk í allan sannleika um ólík veiðarfæri og virkni þeirra við netaverkstæðið í Grindavík.

Saltfisksetrið í Grindavík var einnig skoðað og farið lauslega yfir sögu og þróun fiskveiða á Íslandi. Að lokum var gengið að hrauninu í Nátthaga.

Nemar og starfsmenn komu til baka, glaðir og ýmsu vísari. Ljósmyndir tók Agnes Eydal.

mynd af nemum GRÓ Sjávarútvegsskóla

 

mynd af nemum í Tilraunaeldisstöð

 

 

 

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?