Samstarfssamningur milli Hafrannsóknastofnunar og Náttúruminjasafns Íslands

Þorsteinn Sigurðsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna… Þorsteinn Sigurðsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna, og Hilmar J. Malmquist forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands kampakátir með samkomulagið.

Þorsteinn Sigurðsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna, og Hilmar J. Malmquist forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands innsigluðu nýlega rammasamkomulag um samstarf stofnananna. Markmið samkomulagsins er að stuðla að samstarfi fræðimanna og nemenda á vegum stofnananna um rannsóknir og miðlun á fræðasviðum sínum.

Undirritun samkomulagsins er mikilvægur liður í að styrkja tengsl stofnananna. Að sögn Hilmars er það einkar mikilvægt fyrir Náttúruminjasafnið í því ljósi að nú er unnið hörðum höndum að gerð grunnsýningar í nýjum höfuðstöðvum safnsins á Seltjarnarnesi, Náttúruhúsinu í Nesi, sem til stendur að opna um mitt ár 2025.

Þema sýningar verður hafið, eðli þess og gerð, með áherslu á líffræðilega fjölbreytni og vistfræði. Áhersla þessi sem óneitanlega er gleðiefnið fyrir Hafrannsóknastofnun. Hin nýja aðstaða mun veita einstakt tækifæri varðandi miðlun og fræðslu á mikilvægi hafsins fyrir land og þjóð.

Samstarf stofnananna býður upp á mikil samlegðaráhrif á sviði vísinda, menntunar og menningar. Það er því tilhlökkun innan veggja beggja stofnanna á samstarfinu við Hafrannsóknastofnun sem býr að úrvalsþekkingu á málefnum hafsins og sjávarlífríkisins.

Sjá frétt á vef Náttúruminjasafns Íslands


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?