Ráðgjöf um hrefnuveiðar

Ráðgjöf um hrefnuveiðar

Hafrannsóknastofnun ráðleggur að árlegar veiðar hrefnu árin 2018–2025 verði ekki meiri en 217 dýr á íslenska landgrunnssvæðinu. Síðasta ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar varðandi hrefnuveiðar var veitt vorið 2016 og tók hún til áranna 2016-2018. Þar var mælt með árlegum veiðum á allt að 224 hrefnum. Í skýrslu vísindanefndar NAMMCO frá haustinu 2017, sem byggir á úttekt alþjóða hvalveiðiráðsins, er lagt til að árlegar veiðar á hrefnu nemi að hámarki 217 dýrum á tímabilinu 2018-2025. Byggir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar á þeirri vinnu.

Hrefnuveiðar hafa undanfarin ár verið langt undir ráðlögðum hámarksfjölda og flestar hrefnur verið veiddar í Faxaflóa. Árið 2017 veiddust einungis 17 hrefnur, þar af fjórar í utanverðum Skagafirði.

Á grundvelli ofangreindrar úttektar leggur Hafrannsóknastofnun til að árlegar veiðar á hrefnu nemi að hámarki 217 dýrum á tímabilinu 2018-2025.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?