Ráðgjöf um heildaraflamark grásleppu

Ráðgjöf um heildaraflamark grásleppu

Ráðgjöf um heildaraflamark grásleppu fiskveiðiárið 2017/2018 og upphafsaflamark 2018/2019

Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um endanlegt heildaraflamark fyrir grásleppu fiskveiðiárið 2017/2018 byggir á stofnvístölu úr stofnmælingu botnfiska í mars 2018. Niðurstöður mælinga liggja nú fyrir og reyndist vísitalan vera 6,9 sem er töluvert lægra gildi en mældist á sama tíma í fyrra (8,2). Stofnvísitala grásleppu hefur sveiflast mikið milli ára og því er mikilvægt að afli hvers árs taki mið af stofnstærð sama árs, frekar en ársins á undan. Hins vegar, vegna óvissu í mælingunum, er tekið tillit til vísitölu fyrra árs með vægi 30% á móti nýrri mælingu með vægi 70% við útreikning ráðlagðs hámarksafla.

Í samræmi við framangreinda ráðgjafarreglu leggur Hafrannsóknastofnun til að heildaraflamark grásleppu á fiskveiðiárinu 2017/2018 verði 5487 tonn. Hafrannsóknastofnun leggur jafnframt til að upphafsaflamark fiskveiðiársins 2018/2019 verði 1557 tonn.

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?