Ráðgjöf fyrir rækjuveiðar við Snæfellsnes

Ráðgjöf fyrir rækjuveiðar við Snæfellsnes

Hafrannsóknastofnun ráðleggur í samræmi við varúðarsjónarmið að afli á svæðinu við Snæfellsnes frá 1. maí 2019 til 15. mars 2020 verði ekki meiri en 393 tonn. Á árunum 2008 til 2016 var stofnvísitalan í meðallagi en sveiflukennd. Árið 2017 lækkaði hún töluvert og hefur haldist á því bili undanfarin þrjú ár. Ráðgjöf fyrir 2018/2019 var 442 tonn og lækkar því ráðgjöfin um tæp 50 tonn frá síðasta ári.

Ráðgjöfina í heild sinni má nálgast hér
Tækniskýrslu um veiðar og stofnmat ná nálgast hér


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?