Niðurstöður makrílleiðangurs liggja fyrir

Niðurstöður makrílleiðangurs liggja fyrir

Lokið er samantekt sameiginlegs uppsjávarleiðangurs Íslendinga, Grænlendinga, Færeyinga, Norðmanna og Dana sem farinn var á tímabilinu 30.júní til 6.ágúst 2018. Megin markmið leiðangursins var að meta magn uppsjávarfiska í Norðaustur-Atlantshafi að sumarlagi.

Vísitala lífmassa makríls var metinn 6,2 milljónir tonna sem er 40% lækkun frá árinu 2017 og 30% lægri en meðaltal síðustu 5 ára. Mestur þéttleiki mældist í Noregshafi (mynd 1 og 2) en mun minna mældist á hafsvæðinu við Ísland en verið hefur undanfarin ár. Líkt og undanfarin ár var þéttleikinn á Íslandsmiðum mestur vestan við landið.

Mynd 1. Leiðangurslínur skipanna og magn makríls (kg) í yfirborðstogum í uppsjávarleiðangri sumarið 2018.

Mynd 1. Leiðangurslínur skipanna og magn makríls (kg) í yfirborðstogum í uppsjávarleiðangri sumarið 2018.

Mynd 2. Vísitala á magn makríls reiknuð fyrir reiti (2 breiddargráður og 4 lengdargráður sumarið 2018. Enginn makríll mældist í hvítum reitum og gulur-rauður litakvarðinn táknar breytileika í magni. Stærð hringja sýnir magn makríls á togstöðvum sem tonn/km2.

Magn norsk-íslenskrar síldar lækkaði einnig og var vísitala lífmassa metin 4,5 milljónir tonna sem er 24 % lækkun frá árinu 2017. Útbreiðsla stofnsins var svipuð og undanfarin ár fyrir fullorðna hluta stofnsins þar sem mesti þéttleikinn var norður af Færeyjum, fyrir austan og norðan Ísland (mynd 3).

Mynd 3. Útbreiðsla og magn (bergmálsgildi) norsk-íslenskrar vorgotssíldar sumarið 2018.

Mynd 3. Útbreiðsla og magn (bergmálsgildi) norsk-íslenskrar vorgotssíldar sumarið 2018. 

Þriðja árið í röð var lögð aukin áhersla á að fylgjast með útbreiðslu kolmunna og að meta stærð stofnsins. Vísitala stofnstærðar kolmunna sem er ársgamall og eldri var 2,0 milljónir tonna sem er 11% lækkun frá 2017. Kolmunni fannst á mest öllu rannsóknarsvæðinu nema í köldum sjó út af Austur-Grænlandi og milli Íslands og Jan Mayen (mynd 4). Við Ísland mældist mest af kolmunna við landgrunnsbrúnina sunnan við landið.

Mynd 4. Útbreiðsla og magn kolmunna sumarið 2018.

Yfirborðshiti sjávar sunnan og vestan við Ísland var um 1 – 2 °C lægri en langtímameðaltal síðustu 20 ára en um 1 – 2 °C hærri norðan við landið sem og við austurströnd Grænlands. Í Noregshafi var yfirborðshiti um og yfir meðaltali síðustu 20 ára.

Heildar vísitala um magn dýrasvifs á öllu rannsóknasvæðinu lækkaði um tæpan fimmtung en mikill breytileiki var milli svæða. Þannig mældist um 18% aukning vísitölunnar á hafsvæðinu við Ísland en minnkun var í magninu í Noregshafi og við Grænland.

Niðurstöður leiðangursins voru kynntar Alþjóðahafrannsóknaráðinu (ICES) í dag og eru niðurstöðurnar, ásamt öðrum gögnum, notaðar við mat á stofnstærð makríls en ICES mun birta ráðgjöf um aflamark síldar, makríls og kolmunna þann 28. september.

Skýrsla með niðurstöðum leiðangursins 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?