Hafrannsóknastofnun og Náttúruminjasafn Íslands tóku höndum saman á Vísindavöku um liðna helgi undir merkjum Icewater og með yfirskriftinni Vinnum saman að verndun vatns.
Vísindavakan var einstaklega vel sótt í ár en ríflega 7.000 gestir heimsóttu viðburðinn. Mikill áhugi var á sýningu og fræðslu stofnananna þar sem gestum gafst kostur á að kynnast fjölbreyttu lífríki ferskvatns og sjávar á lifandi og aðgengilegan hátt.
Gestir á öllum aldri fengu að skoða ýmsar lífverur úr fjöru og vatni, fræðast um þörunga og fjörudýr og kynnast helstu munum á lífríki ferskvatns og sjávar. Fjölmargir nýttu sér einnig tækifærið til að spyrja starfsfólk beggja stofnana spurninga og fræðast frekar um vistkerfi vatna og hafsins.
Boðið var upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir yngri sem eldri gesti. Í föndursmiðju gátu þátttakendur búið til glitrandi fjörudýr og notið skapandi verkefna í rólegu umhverfi. Einnig vöktu álímd tattú af lífverum úr fjörunni mikla lukku meðal yngri gesta.
Hafrannsóknastofnun og Náttúruminjasafn Íslands eru afar ánægð með samstarfið á vökunni. Viðburðurinn sannaði m.a. vel hversu mikilvægt er að miðla þekkingu á náttúru Íslands og hvernig samstarf stofnana getur styrkt fræðslu og aukið áhuga almennings á náttúru og vatnalífi landsins.
Frétt þessi og myndir birtust fyrst á vef Náttúruminjasafns Íslands, sjá hér.

Glæsilegur hópur starfsfólks Hafrannsóknastofnunar og Náttúruminjasafns Íslands miðlaði fróðleik um vatn með ýmsum hætti á Vísindavöku Rannís um sl. helgi.
