Marsrallið hafið

Marsrallið hafið

Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum er hafin og stendur yfir næstu þrjár vikurnar. Fjögur skip taka þátt í verkefninu; togararnir Ljósafell SU og Múlaberg SI og rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson. Alls verður togað á um 600 stöðvum á 20-500 m dýpi umhverfis landið. Helmingur togstöðva var í upphafi staðsettur af skipstjórum, en öðrum stöðvum var dreift um miðin með tilviljunarkenndum hætti. Úrvinnsla mælinganna og aldursgreiningar fara fram í lok mars og helstu niðurstöður verða kynntar í apríl.

Verkefnið, sem einnig hefur verið nefnt marsrall eða togararall, hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti á hverju ári síðan 1985. Helstu markmið eru að fylgjast með breytingum á stofnstærðum, aldurssamsetningu, fæðu, ástandi og útbreiðslu botnfisktegunda við landið. Einnig verður sýnum safnað vegna ýmissa rannsókna, t.d. á mengunarefnum í sjávarfangi. Erfðasýni verða tekin úr nokkrum fisktegundum, athuganir gerðar á botndýrum og mat lagt á magn ýmiskonar rusls á sjávarbotni.

Í ár mun Hafrannsóknastofnun hefja aftur merkingar á þorski eftir nokkurt hlé. Þorskur verður merktur á tveimur svæðum í marsralli 2019, annars vegar út af Vestfjörðum og hins vegar á Kolbeinseyjarhrygg.

Fylgjast má með ferðum skipanna á https://skip.hafro.is og þar sjást einnig fastar togstöðvar í marsralli.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?