Marsrallið hafið

Marsrallið hafið

Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum er hafin og stendur yfir næstu þrjár vikurnar. Fjögur skip taka þátt í verkefninu; togararnir Ljósafell SU og Hjalteyrin EA og rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson. Alls verður togað á um 600 stöðvum á 20-500 m dýpi umhverfis landið.

Verkefnið, sem einnig er nefnt marsrall eða togararall, hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti á hverju ári síðan 1985. Helstu markmið eru að fylgjast með breytingum á stofnstærðum, aldurssamsetningu, fæðu, ástandi og útbreiðslu botnfisktegunda við landið. Einnig verður sýnum safnað vegna ýmissa rannsókna, t.d. á mengandi efnum í sjávarfangi. Þá verða erfðasýni tekin úr nokkrum fisktegundum og athuganir gerðar á botndýrum. Helmingur togstöðva var í upphafi staðsettur af skipstjórum, en öðrum stöðvum var dreift um miðin með tilviljunarkenndum hætti. Úrvinnsla mælinganna og aldursgreiningar fara fram í lok mars og helstu niðurstöður verða kynntar í apríl.

Fylgjast má með ferðum skipanna á slóðinni https://www.hafogvatn.is/is/um-okkur/skipin/stadsetning-skipa


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?