Heimsdagur hafsins er haldinn hátíðlegur 8. júní ár hvert til að minna á mikilvægi hafsins fyrir þjóðir heims og hvetja til aukinnar vitundar um nauðsyn verndunar. Í því tilefni er efnt til málþings þar sem fjallað verður um stöðu og framtíð hafsins á tímum aukinna alþjóðlegra áskorana. Áhersla verður á málefni hafsins á alþjóðavettvangi og mikilvægi verndunar hafsins og sjálfbærrar nýtingar þess fyrir Ísland sem hafríki.
Sameinuðu þjóðirnar samþykktu árið 2008 að tilnefna 8. júní ár hvert sem Heimsdag hafsins (e. World Ocean Day) til að minna á mikilvægi hafsins fyrir þjóðir heims og hvetja til aukinnar vitundar um nauðsyn verndunar þess. Af því tilefni standa utanríkisráðuneytið og Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands fyrir málþingi sem tileinkað er hafinu mánudaginn 8. júní kl. 13.00 - 15.30 í Björtuloftum í Hörpu. Boðið verður upp á léttan hádegisverð frá kl. 12.30.
Hrönn Egilsdóttir, sviðstjóri umhverfissviðs Hafrannsóknarstofnunar, Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir, verndunarlíffræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands og Biodice, og fulltrúi frá Sjávarklasanum flytja stutt erindi um verndun hafsins og sjálfbæra nýtingu þess, auk þess sem fjallað verður um áhrif breytinga veltihringrásar Atlantshafsins (AMOC) á þessi mál.
Nánari upplýsingar um dagskrá sem og skráning á viðburðinn má finna hér.