Miðvikudaginn 7. maí kl. 12.30 verður haldinn málstofa á vegum Hafrannsóknastofnunar sem ber heitið Kolefnisbinding þaraskóga í hlýnandi heimi en það er hinn ástralski Dr. Albert Pessarrodona sjávarlíffræðingur sem segir frá. Málstofan verður haldin á ensku og hún verður tekin upp.
Þróun í náttúrulegum loftslagslausnum er knúin áfram af brýnni þörf á að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka kolefnisbindingu. Hafið er er lykilþáttur í þessari þróun.
Í fyrirlestri Alberts verður fjallað um hlutverk þaraskóga í kolefnishringrás strandsvæða og möguleikar þeirra metnir sem „blátt kolefni“, þ.e. að vistkerfi sjávar bindi kolefni. Einnig verður fjallað um hvernig loftslagsbreytingar geta haft áhrif á þessa bláu kolefnisbindingalausnir, með sérstakri áherslu á þaraskógi á norðurhveli jarðar.
Málstofan fer fram í höfuðstöðvum Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5 og er öllum opin. Hún verður einnig aðgengileg á Teams. Tengil á fjarfund má finna hér.