Mælingar á grindhvölunum sem drápust við Útskálakirkju í Garði

Ljósm. Sverrir Daníel Halldórsson Ljósm. Sverrir Daníel Halldórsson

Sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar fóru í dag í fjöruna við Útskálakirkju í Garði til að rannsaka dýrin sem drápust í fjörunni í sl. nótt.

Í fjörunni reyndust vera 14 dýr þar af 2 kálfar (undir 2m). Samsetning hópsins var eftirfarandi: 11 kýr og 3 tarfar. Stærsti tarfurinn reyndist 459cm og stærsta kýrin 439cm. Tekin voru erfðasýni úr dýrunum og mælingar gerðar til að meta holdafar. Þá voru einnig tekin blóðsýni til bakteríu og veiruskimunar.

Sérfræðingarnir sem fóru í fjöruna í dag eru Sverrir Daníel Halldórsson og Þorvaldur Gunnlaugsson.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?