Loðnumælingum lokið þennan veturinn

Falleg fjallasýn blasti við loðnuleitarfólki. Falleg fjallasýn blasti við loðnuleitarfólki.

Rannsóknarskipið Árni Friðriksson var síðustu vikuna við loðnurannsóknir út af Norðvesturlandi en þeim er nú lokið. Meginmarkmiðið var að kanna hrygningargöngur og magn loðnu á svæðinu.

Yfirferðin hófst vestur af Dohrnbanka og fylgdi kantinum úti fyrir Vestfjarðamiðum allt norður að Skagagrunni (sjá mynd hér neðar). Jafnframt safnaði rannsóknaskipið Þórunn Þórðardóttir bergmálsgögnum sem skoðuð voru með tilliti til loðnu í sjórannsóknaleiðangri kringum landið í febrúar. Nær ekkert sást af loðnu norður af landinu. Vart varð við lítils háttar magn af hrygningarloðnu á Barðagrunni og eins var ókynþroska loðna við kantinn utar á Vestfjarðamiðum. Miðað við þessar niðurstöður má draga þá ályktun að meginhluti kynþroska loðnunnar sem mældist norðvestur af landinu í janúar (alls 328 þúsund tonn) hafi gengið þaðan til austurs, réttsælis með landinu og muni skila sér til hrygningar suður og vestur af landinu.

Hafrannsóknastofnun ráðgerir ekki frekari mælingar á loðnustofninum þennan veturinn.

Leiðarlínur Árna Friðrikssonar í loðnumælingum 10.- 18. febrúar og leiðarlínur Þórunnar Þórðardóttur
í sjórannsóknum dagana
3.–17. febrúar.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?