Loðnumælingar í vikunni í takt við fyrri mælingu

Loðnumælingar í vikunni í takt við fyrri mælingu

Uppsjávarveiðiskipin Polar Ammassak og Aðalsteinn Jónsson hafa í samvinnu við Hafrannsóknastofnun verið við loðnumælingar suðaustan- og austan við land frá mánudegi til föstudags þessarar viku.

Markmiðið var að fá endurtekna mælingu á magn loðnu í megingöngunni á þeim slóðum til samanburðar við niðurstöður mælinga í vikunni á undan. Bæði skipin fóru yfir allt svæðið eftir mismunandi leiðarlínum og því er um að ræða tvær óháðar mælingar á magninu þar.

Bráðabirgða niðurstöður sýna ívið lægra mat á stærð veiðistofnsins en í mælingunni í vikunni á undan á sömu slóðum. Það er því ljóst að niðurstöðurnar munu leiða til óbreyttrar ráðgjafar um engar veiðar. Hafrannsóknastofnun ráðgerir að Árni Friðriksson fari til loðnuleitar norður að landinu öðruhvoru megin við næstu helgi.

Myndin til vinstri sýnir leiðarlínur Aðalsteins Jónssonar (blá) og Polar Ammassak (bleik) 27.-31. janúar 2025
og mislangar línur þvert á leiðarlínur endurspegla þéttleika loðnu. Hægri myndin sýnir þéttleika loðnu.

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?