Loðnumælingar hafnar

Mynd: Hafrannsóknastofnun Mynd: Hafrannsóknastofnun

Í gærkvöldi og í dag 16. janúar eru fimm skip að byrja leit og mælingar á loðnustofninum. Þrjú skipanna, RS Árni Friðriksson, Hákon EA og Polar Amaroq er ætlað að sjá um magnmælingar meðan að tvö skip, Bjarni Ólafsson AK og Ásgrímur Halldórsson SF, eru nokkurskonar undanfarar og er ætlað að afmarka dreifingu loðnunnar á útjöðrunum svo hægt sé að ná mælingu á sem skemmstum tíma.

Hægt er að fylgjast með framgangi leiðangursins á vef Hafrannsóknastofnunar.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?