Loðnuleiðangur breytir ekki ráðgjöf

Útbreiðsla loðnu í janúar samkvæmt bergmálsgildum. Árni Friðriksson rauður, Polar Ammassak grænn, Bj… Útbreiðsla loðnu í janúar samkvæmt bergmálsgildum. Árni Friðriksson rauður, Polar Ammassak grænn, Bjarni Sæmundsson blár og Ásgrímur Halldórsson bleikur.

Hafrannsóknastofnun mun ekki breyta fyrri ráðgjöf um engar loðnuveiðar á þessari vertíð eftir mælingar síðustu vikuna. Ástæða þess er að lítið mældist og sterkar líkur á því að loðna sé enn undir hafísnum norðvestur af Íslandi.

Þetta eru helstu niðurstöður mælinga sem gerðar voru af rannsóknarskipunum Bjarna Sæmundssyni og Árna Friðrikssyni ásamt loðnuveiðiskipunum Polar Ammassak og Ásgrími Halldórssyni á tímabilinu 16.-23. janúar. Út af Austfjörðum varð ekki vart við loðnu og einnig mældist lítið magn á norðaustur hluta svæðisins, en þetta eru þau svæði þar sem fremsta hluta loðnugöngunnar er jafnan að finna á þessum tíma (1. mynd). Mesti þéttleiki fullorðinnar loðnu var í námunda við hafísröndina á svæðinu út af Horni og austur að Kolbeinseyjarhrygg. Vestan við það svæði var aðallega að finna ókynþroska loðnu. Miðað við þessa dreifingu má ætla að ís hafi komið í veg fyrir að náðst hafi að dekka allt útbreiðslusvæði loðnunnar. Það magn sem mældist nú af fullorðinni loðnu er aðeins um fjórðungur þess sem mældist í haust.

Af þessum ástæðum gerir Hafrannsóknastofnunin ráð fyrir því að fara aftur til mælinga í febrúar með von um að loðnan verði gengin undan ísnum eða ísinn hafi hopað. Nákvæmar dagsetningar um framhaldið hafa ekki verið ákveðnar.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?