Landselur – ráðgjöf

Landselur Landselur

Hafrannsóknastofnun leggur til að sett verði bann við beinum veiðum á landsel.

Stofnunin leggur einnig til að leitað verði leiða til að draga úr meðafla landsels við netaveiðar.  Verði takmarkaðar beinar veiðar leyfðar er mikilvægt að veiðistjórnunarkerfi verði innleitt og skráningar á öllum veiðum verði lögbundnar. Jafnframt leggur stofnunin til að reynt verði að takmarka möguleg truflandi áhrif af athöfnum manna á landsel, sérstaklega í maí-ágúst þegar kæping og háraskipti eiga sér stað. Ráðgjöf stofnunarinnar má nálgast á þessum tengli.

Hafrannsóknastofnun, í samvinnu við Selasetur Íslands, hefur lokið vinnu við mat á stærð landselsstofnsins við Ísland, byggt á talningum sem fram fóru sumarið 2018. Skýrslu um verkefnið má nálgast á þessum tengli.

Landselsstofninn er metinn vera um 9400 dýr. Frá árinu 1980 hafa reglubundnar talningar farið fram til að meta stofnstærð og breytingar í stofnþróun tegundarinnar við Ísland. Stofninn er nú metinn vera 72% minni en árið 1980, en 23% stærri en árið 2016 þegar sambærilegt stofnstærðarmat var síðast unnið. Mesta fækkunin í stofninum átti sér stað frá árinu 1980 til ársins 1989 og benda niðurstöður undanfarinna ára til að stærð stofnsins sveiflist nú nálægt sögulegu lágmarki. Samkvæmt stjórnunarmarkmiðum fyrir landsel við Ísland skal lágmarks stofnstærð vera 12.000 selir. Niðurstöður stofnmatsins gefa til kynna að fjöldinn sé nú um 21% minni.  Mikilvægt er því að gripa til aðgerða til að ná þeim markmiðum sem stjórnvöld hafa sett.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?