ICES veitir ráðgjöf um aflamark uppsjávarstofna fyrir árið 2023

Makríll. Mynd Svanhildur Egilsdóttir. Makríll. Mynd Svanhildur Egilsdóttir.

Í dag 30. september 2022 veitir Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) ráð um veiðar á norsk-íslenskri síld, makríl og kolmunna fyrir árið 2023.

Norsk-íslensk vorgotssíld
ICES leggur til í samræmi við samþykkta aflareglu strandríkja að afli ársins 2023 verði ekki meiri en 511 þúsund tonn. Ráðgjöf yfirstandandi árs var 599 þúsund tonn og er því um að ræða tæp 15% lækkun í tillögum ráðsins um afla næsta árs. Gert er ráð fyrir að stóri árgangurinn frá 2016 verði uppistaðan í veiði næsta árs en árgangar þar á eftir eru metnir litlir. Áætlað er að heildarafli ársins 2022 verði um 828 þúsund tonn sem er 28% umfram ráðgjöf. Ekki er í gildi samkomulag milli þeirra þjóða sem stunda veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum um skiptingu aflahlutdeildar og hver þjóð því sett sér aflamark. Það hefur haft þær afleiðingar að frá árinu 2013 hafa veiðar umfram ráðgjöf ICES numið 4-42% á ári.

Hlekkur á ráðgjöfina og forsendur hennar.
Hlekkur á tækniskýrslu sérfræðinganefndar ICES.

Makríll
ICES leggur til, í samræmi við nýtingarstefnu sem mun leiða til hámarksafraksturs til lengri tíma litið (MSY), að afli ársins 2023 verði ekki meiri en 782 þúsund tonn. Ráðgjöf yfirstandandi árs var 795 þúsund tonn og því er um að ræða tæplega 2% lægri ráðgjöf nú.

Áætlað er að heildarafli ársins 2022 verði ríflega 1,1 milljón tonn sem er 42% umfram ráðgjöf. Ekki er í gildi samkomulag milli þeirra þjóða sem stunda veiðar úr makrílstofninum um skiptingu aflahlutdeildar og hver þjóð settur sér aflamark, sem hefur haft þær afleiðingar að veiðar hafa verið umfram ráðgjöf ICES.

Hlekkur á ráðgjöfina og forsendur hennar.
Hlekkur á tækniskýrslu sérfræðinganefndar ICES.

Kolmunni
ICES leggur til, í samræmi við langtímanýtingarstefnu, að afli ársins 2023 verði ekki meiri en tæp 1 360 þúsund tonn. Ráðgjöf yfirstandandi árs var 753 þúsund tonn og er því um að ræða 81% hækkun á ráðgjöf frá í fyrra. Ástæðan fyrir mikilli hækkun á aflamarki er vaxandi hrygningarstofn. Árgangurinn frá 2020 er metinn sá stærsti sem mælst hefur við tveggja ára aldur (2022) og einnig er hann metinn ríflega þrisvar sinnum stærri nú en í stofnmati síðasta árs. 2020 árgangurinn gengur að fullu inn í hrygningarstofninn árið 2023 og framreikningar sýna stækkandi hrygningarstofn næstu tvö árin sé ráðgjöf fylgt. Áætlað er að heildarafli ársins 2022 verði 1,1 milljón tonn sem er 47% umfram ráðgjöf. Frá árinu 2018, hafa veiðar umfram ráðgjöf ICES numið 23-33%.

Hlekkur á ráðgjöfina og forsendur hennar.
Hlekkur á tækniskýrslu sérfræðinganefndar ICES.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?