Sæbjúgu á hafsbotni með munnarmana úti. Myndin er tekin úr leiðöngrum vegna kortlagningar hafsbotnsins.
Hafrannsóknastofnun sendi nýlega frá sér stofnmat og ráðgjöf vegna brimbúts, sjá hér. Brimbútur hefur iðulega verið kallaður sæbjúga en brimbútur er þó aðeins ein tegund af sæbjúgum. En hvers konar sjávarverur eru sæbjúgu eiginlega?
Þau tilheyra fylkingu skrápdýra (Echinodermata) — sömu fylkingu og krossfiskar, ígulker og slöngustjörnur — en mynda þó sinn eigin flokk, Holothuroidea. Ólíkt frændum sínum eru sæbjúgu með mjúkan, aflangan búk sem minnir á bjúga eða gúrku. Húðin á sæbjúgum er leðurkennd og í henni eru örsmáar kalkflögur, leifar af beinagrindinni sem annars einkennir skrápdýr. Húðina geta sæbjúgun herpt eða slakað að vild. Sæbjúgu finnast í öllum heimshöfum, allt frá fjöruborði niður á mikið dýpi, og eru afar hægvaxta dýr. Um það bil 1.200 tegundir af sæbjúgum hafa fundist um allan heim, en aðeins um 70-80 af þeim eru nytjaðar.
Sæbjúgu hafa oft óvenjulegar varnir gegn rándýrum. Verði þau fyrir árás geta sum þeirra spýtt út hluta af innyflum sínum um endaþarminn til að rugla árásaraðilann í ríminu og forðað sér á meðan, en innyflin vaxa svo aftur á nokkrum vikum. Sum sæbjúgu búa einnig yfir svonefndum Cuvier-þræði (Cuvierian tubules), sem er afar klístraður þráður sem þau geta skotið út og þenst hann allt að tuttugufalt að lengd til að flækja og festa árásaraðila. Enn önnur herpa sig saman og verða hnöttótt svo að erfiðara sé að grípa þau. Þau sleppa jafnvel takinu á botninum og fljóta í burtu.
Sum sæbjúgu eru „ánamaðkar hafsins“
Sum sæbjúgu eru setætur (e. deposit feeders) og gegna lykilhlutverki við hreinsun og endurvinnslu lífræns efnis á hafsbotni. Þegar þau tína upp botnset og melta úr því lífrænar leifar losna næringarefni á borð við köfnunarefni og fosfór út í umhverfið á formi sem aðrar lífverur geta nýtt — ekki ósvipað því hlutverki sem ánamaðkar gegna í jarðvegi á landi.
Með því að grafa sig í gegnum og hræra upp í botnsetinu (e. bioturbation) auka sæbjúgu súrefnisflæði ofan í setlögin, sem kemur öðrum botnlífverum til góða og dregur úr uppsöfnun lífræns úrgangs. Þau eru því oft kölluð „ánamaðkar hafsins" og teljast mikilvægur hlekkur í að viðhalda heilbrigði og frjósemi hafsbotnsins. Fjólubláa sæbjúgað Laetmogone violacea er dæmi um slíka setætu sem er algeng við Ísland.

Mynd 1. Sæbjúgað Laetmogone violacea losar ómeltanlegt set út um afturendann. Mynd: Úr leiðöngrum kortlagningar hafsbotnsins.
Ein nytjategund við Ísland
Við Ísland er ein tegund sæbjúgna nytjuð: brimbútur (Cucumaria frondosa) sem er stærsta og algengasta sæbjúgnategundin á grunnslóð við Ísland og er algeng um allt Norður-Atlantshaf. Brimbútur verður um 20–30 cm langur þegar hann er slakur. Hann er rauð- til dökkbrúnn að lit og hefur tíu marggreinótta munnarma. Fimm raðir totufóta liggja eftir endilöngum líkamanum og eru notaðar til hreyfingar og til að festa sig við botninn. Brimbútur er síari (e. filter feeder) sem teygir munnarmana út til að grípa svif og lífrænar agnir og stingur svo einum armi í einu í munninn og hreinsar fæðuna af þeim.

Mynd 2. Brimbútar á hafsbotni með munnarmana úti. Mynd: Úr leiðöngrum kortlagningar hafsbotnsins.
Brimbútur lifir á hörðum eða blönduðum botni (möl, grjóti, skeljasandi), aðallega á um 10–300 m dýpi. Hjá brimbút eru aðskilin kyn, karldýr og kvendýr. Dýrin hrygna öll á sama tíma á vorin, um það leyti sem svifþörungablóminn hefst. Eggin eru stór og forðarík og lirfurnar nærast ekki (e. lecithotrophic) heldur lifa á forðanum fyrst um sinn og eru sviflægar í nokkrar vikur. Dýrin vaxa hægt, verða seint kynþroska og eru langlíf.
Engar upplýsingar eru til um vöxt brimbúts við Ísland og er erfitt að aldursgreina hann þar sem engir harðir líkamshlutar með árhringjum eru til staðar líkt og í kvörnum fiska, en erlendar rannsóknir benda til þess að brimbútur sé hægvaxta tegund.
Einn af varnareiginleikum brimbúts er að þenja sig út, losa sig frá botninum og fljóta í burtu, en hann hefur stundum sést fljótandi í myndböndum. Þess vegna er brimbútur oft grjótharður og kúlulaga fljótlega eftir að hann er veiddur.

Mynd 3. Nýveitt sæbjúga sem er búið að herpa sig saman í kúlu. Hér sjást vel totufótaraðirnar (appelsínugular). Mynd: Petrún Sigurðardóttir
Veiðar á brimbút við Ísland
Veiðar á brimbút hófust sem tilraunaveiðar í Breiðafirði árið 2003 og urðu að eiginlegum atvinnuveiðum árið 2008 í Faxaflóa, þegar um 800 tonnum var landað. Árið 2009 voru fyrstu veiðisvæðin afmörkuð og árið 2019 voru átta veiðisvæði (A–H) afmörkuð með reglugerð, fimm fyrir vestan land og þrjú fyrir austan. Í dag er gefin út ráðgjöf fyrir hvert svæði fyrir sig.

Mynd 4. Átta skilgreind veiðisvæði brimbúts í dag.
Sæbjúgu eru veidd með plógum/drögum, um 250 cm breiðum með að lágmarki 80 mm möskva, og eru flestir bátar með tvo plóga samtímis. Veiðar eru bannaðar á áætluðum hrygningartíma, í maí–júní á vestursvæðum og júní–júlí fyrir austan land. Veiðar á brimbút náðu hámarki árið 2018 þegar tæplega 6.000 tonn voru veidd, en aflinn hefur dregist verulega saman síðan, eða niður í um 1.160 tonn árið 2025.
Hafrannsóknastofnun byggir ráðgjöf um leyfilegan heildarafla á stofnvísitölum úr árlegum rannsóknaleiðöngrum og gagnamiðuðum aðferðum ICES, enda er tímaröð mælinga enn tiltölulega stutt. Stofnmatsleiðangrar brimbúts hófust árið 2020 og eiga sér stað í ágúst ár hvert. Þá er farið á sex af átta veiðisvæðunum og togað með bjálkatrolli til að meta þéttleika sæbjúgna. Öll sæbjúgu í hverju togi eru talin og hluti af þeim lengdarmæld (lengd og ummál) og vigtuð (óslægð og slægð innyfli). Að jafnaði er þyngd brimbúts meiri við Austurland en á svæðunum við vestanvert landið. Einnig er brimbútur nokkuð stærri við Austurland, kápan (skrápurinn) þynnri og vatnsinnihald meira.

Mynd 5. Dæmi um plóg/drögu sem er notaður í sæbjúgnaveiðar. Mynd: Guðrún G. Þórarinsdóttir
Af hverju er brimbútur veiddur?
Sæbjúgu þekkjast varla sem matvæli hérlendis en teljast lostæti víða í Austur-Asíu, einkum í Kína, þar sem þau hafa um aldir verið notuð bæði í hátíðarrétti og hefðbundnar lækningar.
Útflutningur á íslenskum sæbjúgum til Asíu hófst upp úr 2005, þegar fyrirtæki á borð við Reykofninn-Grundarfirði og Hafnarnes hófu útflutning, og greinin óx hratt um tíma. Sæbjúgun eru þurrkuð eða fryst áður en þau eru flutt út, enda er geymsluþol ferskrar vöru lítið. Í kínverskri matargerð eru þurrkuð sæbjúgu fyrst lögð í bleyti og soðin lengi þar til þau verða mjúk og hlaupkennd, og eru svo notuð í rétti á borð við súpur og eldaða rétti sem oft eru bornir fram við hátíðleg tækifæri — meðal annars í hinum þekkta rétti „Buddha Jumps Over the Wall“. Sæbjúgu hafa lítið eigið bragð en eru einkum metin fyrir áferð sína. Í hefðbundinni kínverskri læknisfræði er þeim einnig eignaðir ýmiss konar heilsubætandi eiginleikar, þótt vísindalegar sannanir fyrir slíku séu takmarkaðar.
Sæbjúgnaveiði við Ísland hefur gengið í gegnum ýmiss konar sveiflur: offramboð á markaði, aðhaldsaðgerðir kínverskra stjórnvalda og afföll í stofnum sæbjúgna víða um heim leiddu til þess að útflutningur dróst mikið saman upp úr 2014. Veiðar og útflutningur hafa þó haldið áfram í breyttri mynd, samhliða því að veiðistjórnun hefur verið hert til að tryggja sjálfbærni. Sæbjúgu eru hægvaxta dýr og því viðkvæm fyrir ofveiði sé ekki gætt að sjálfbærni veiðanna.