Botnfiskar, þar með talið þorskar og karfi en einni glittir þarna í ýsu og steinbít.
Mynd: Svanhildur Egilsdóttir
Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum fór fram dagana 25. febrúar til 23. mars 2026. Togararnir Breki VE-61 og Þórunn Sveinsdóttir VE-401 tóku þátt í verkefninu ásamt rannsóknaskipunum Árna Friðrikssyni HF-200 og Þórunni Þórðardóttur HF-300. Verkefnið hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti ár hvert frá 1985 en markmiðið er að meta breytingar á stærð botnlægra fiskistofna ásamt því að vakta útbreiðslu og líffræðilegt ástand þeirra.
Stofnvísitala þorsks hækkaði nær samfellt árin 2007-2017, fyrst og fremst vegna aukins magns af stórum þorski. Eftir hámarkið 2017 hefur vísitalan lækkað og er nú sú lægsta frá árinu 2011. Fjöldavísitala þorsks ≤56 cm var undir meðaltali en þó vísitala stærsta þorsksins (≥80 cm) hafi lækkað á síðustu tveim árum er hún enn yfir meðaltali rannsóknatímans. Magafylli þorsks var nálægt meðaltali og loðna var rúmlega helmingur af fæðu þorsks af öllum stærðarflokkum. Loðna fannst helst í fæðu þorsks á svæðinu frá Suðausturlandi að Vestfjörðum meðan nær engin loðna var í þorskmögum fyrir norðan og austan land.
Stofnvísitala ýsu hækkaði frá 2016 til 2023 en þrátt fyrir lækkun á síðustu tveim árum er hún yfir meðaltali rannsóknatímans. Fjöldavísitala ýsu ≤25 cm hækkaði og var sú fjórða hæsta frá árinu 1985. Meira var af loðnu í mögum stórrar ýsu (61–80 cm) en svipað í mögum minni ýsu samanborið við síðasta ár. Loðna fannst helst í ýsumögum í Faxaflóa og við Breiðafjörð.
Stofnvísitala ufsa lækkaði og var svipuð og á árunum 2009–2011 en litlar breytingar voru á vísitölum hlýra, skarkola og gullkarfa. Þó hækkaði fjöldavísitala gullkarfa (4–11 cm) og hefur hún ekki verið hærri síðan árið 1993. Stofnvísitala steinbíts hefur lækkað á síðustu þrem árum og mældist sú lægsta frá árinu 2013. Hins vegar voru stofnvísitölur keilu, blálöngu og löngu meðal þeirra hæstu frá upphafi mælinga. Einnig voru fjöldavísitölur yngri lengdarflokka blálöngu, löngu og keilu með þeim hæstu frá upphafi.
Frekari niðurstöður má finna á stofnmælingavef Hafrannsóknastofnunar. Farið verður yfir helstu niðurstöður ásamt því að ráðgjöfin fyrir næsta fiskveiðiár verður kynnt föstudaginn 12. júní 2026.