Haustrall 2021 – auglýst eftir togara á djúpslóð

Ljósm. Hafrannsóknastofnun Ljósm. Hafrannsóknastofnun

Ríkiskaup, fyrir hönd Hafrannsóknastofnunar, hefur auglýst eftir tilboðum vegna tímabundinnar leigu á togara til stofnmælinga.

Um er að ræða útboð vegna djúpslóðar í stofnmælingum botnfiska að haustlagi, til eins árs (2021) með möguleika á framlengingu til fleiri ára ef aðilar sammælast um það. Gert ráð fyrir að verkefnið taki um fjórar vikur í október.

Niðurstöður úr verkefninu eru mikilvægar við mat á stofnstærð botnfiska og árlega aflaráðgjöf. Verkefnið hefur farið fram ár hvert frá 1996 og eru teknar 375 stöðvar hringinn í kringum landið. Þar af eru um 196 stöðvar á djúpslóð.

Leiga er greidd með aflamarki. Skilafrestur tilboða er til 23. ágúst næstkomandi

Útboðsgögn má sækja á:

http://utbodsvefur.is/stofnmaeling-botnfiska-ad-haustlagi-fyrir-hafrannsoknastofnun/


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?