Þorskur (Gadus morhua). Mynd: Svanhildur Egilsdóttir
Í nýrri grein sem kom út í 100 ára afmælisriti ICES Journal of Marine Science, er skoðað göngumynstur þorsks síðustu 75 ára (1951–2025). Göngurnar voru skoðaðar með tilliti til hitastigsbreytinga og framboðs á loðnu, sem er mikilvægasta fæða þorsks.
Gögnin sýndu að á þessu tímabili var töluverður stöðugleiki í fæðugöngum þorsks sem var merktur á tveimur hrygningarsvæðum við Ísland; á aðalhrygningarsvæðinu við Suðvesturland og fyrir vestan land (í Faxaflóa og Breiðafirði). Eftir hrygningu fór hann á fæðuslóðir sem voru allt frá Suðvesturlandi að Norðvesturlandi. Ekki voru margar endurheimtur fyrir norðan og austan land.
Það voru tvö tímabil sem voru frábrugðin þessu mynstri:
- Frá 1991 til 2009 gekk þorskur í miklu mæli til suðurs og suðausturs í fæðuleit. Á þessum árum var aukning í kolmunna á þessu svæði og líklegt að þorskur hafi leitað í hann.
- Eftir 2020 hefur útbreiðsla þorsks á fæðutíma náð norður fyrir land en einnig hafa göngur aukist á Dohrnbanka. Göngur til Dohrnbanka sáust einnig á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar.
Miklar breytingar voru á hitastigi sjávar á tímabilinu og hlýnun sjávar nærri botni hækkaði um 1,6°C á milli áranna 1993 og 2003. Þessi hlýnun hefur haft mikil áhrif á útbreiðslu loðnu sem hefur fært sig nær Grænlandi. Hins vegar er líklegt að viðbrögð þorsks við hlýnuninni séu aðallega óbein þar sem hann er að bregðast við breytingum í útbreiðslu loðnu og er í fæðuleit.
Það er mikilvægt að fylgjast reglulega með göngum þorsks og þessi rannsókn undirstrikar mikilvægi langtímavöktunar til að skilja viðbrögð tegunda við breytingum í umhverfinu. Þorskmerkingar fara fram reglulega til að byggja upp þann gagnagrunn sem þarf þannig að hægt sé að sinna þessari langtímavöktun.
Sérstakar þakkir fá allir sjómenn og starfsfólk fiskvinnslufyrirtækja sem hafa skilað endurheimtum merkjum til Hafrannsóknastofnunar. Hér á vef Hafrannsóknastofnunar má finna upplýsingar um skil á endurheimtum merkjum.
Hér er tengill á greinina í ICES Journal of Marine Science.

Fæðusvæði þorsks eftir áratugum. Myndin sýnir endurheimtustaðsetningar þorsks sem merktur var á hrygningarsvæði a) við Suðvesturland og b) í Faxaflóa og Breiðafirði.