Áhugaverðar kynningar um sjávarútveg, fiskeldi og alþjóðlegt þróunarstarf

Þátttakendur í Sjávarútvegsskóla GRÓ heimsókn hjá Hampiðjunni í vetur. Þátttakendur í Sjávarútvegsskóla GRÓ heimsókn hjá Hampiðjunni í vetur.

Nemendur Sjávarútvegsskóla GRÓ munu á næstu dögum kynna alls 21 rannsóknarverkefni sem þeir hafa verið að vinna að í vetur.

Mörg þeirra hafa verið unnin í samstarfi við sérfræðinga Hafrannsóknastofnun sem heldur utan um tvær af fjórum sérlínum skólans.  Stofnstærðarlínuna sem Warsha Singh, vistfræðingur á uppsjávarsviði, hefur umsjón með og Fiskeldislínuna sem Theódór Kristjánsson, sérfræðingur í erfðafræði, stýrir.

Kynningarnar eru opnar öllum og eru að sjálfsögðu sérstaklega áhugaverðar öllum þeim er láta sig varða alþjóðlegt þróunarsamstarf, sjávarútveg og fiskeldi. Hægt er að mæta í eigin persónu í höfuðstöðvar Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði eða tengjast gegn um netið. 

Nánari upplýsingar um dagskránna og kynningarnar  má finna á vef Sjávarútvegsskólans hér. Athugið að tengill fyrir fjarfund er merktur í hverri kynningarsyrpu með textanum „Join on-line here" yfir dagskrá dagsins hverju sinni. 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?