Fjölbreyttar hafeðlis- og efnafræðimælingar í sumarleiðangri

Straumlögn sett út í Grænlandssundi í sumarleiðangri 2026. Straumlögn sett út í Grænlandssundi í sumarleiðangri 2026.

Hafnar eru árlegar umhverfismælingar kringum landið á rannsóknaskipinu Þórunni Þórðardóttur, en í leiðangrinum fara einnig fram rannsóknir tengdar öðrum verkefnum. Leiðangurinn hófst 4. ágúst og stendur í 18 daga.

Fjölbreyttum verkefnum á sviði hafeðlis- og efnafræði er sinnt í leiðangrinum en sumar af mælingunum hefur Hafrannsóknastofnun stundað í meiri en 50 ár. Vert að taka fram að langtímarannsóknir sem þessar eru lykill að því að auka þekkingu á vistkerfum og breytingum á umhverfi sjávar.

Felur leiðangurinn í sér langtímavöktun á hita, seltu, súrefni og næringarefnum. Þá fara fram mælingar á ólífrænu kolefni sem gefa upplýsingar um súrnun sjávar. Með nýjum tækjabúnaði er nú unnt að mæla straumhraða og -stefnu á allt að 1000 m dýpi á siglingaleið skipsins. Í Grænlandssundi og á Hornbanka hefur þegar verið skipt um tvær straumlagnir með síritandi mælitækjum á hafsbotni sem fylgjast með hafstraumum milli Íslandshafs og Norður-Atlantshafs.

Í leiðangrinum er einnig farið inn á Vestfirði og Austfirði þar sem verið er að mæla hita, seltu, strauma, súrefni, næringarefni, og svifþörunga, til að meta áhrif sjókvíaeldis á umhverfi fjarðanna.

Þá eru framkvæmdar umhverfismælingar í Húnaflóa á vegum Life ICEWATER verkefnisins, sjá nánar hér

Einnig fara fram árlegar stofnmælingar á sæbjúgum utan Vest- og Austfjarða og á sandsílum við Suðurströnd landsins og í Faxaflóa.

Allar myndir hér á síðunni eru teknar í sumarleiðangrinum sem nú stendur yfir. 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?