Ert þú sérfræðingur í vatnamálum?

Ert þú sérfræðingur í vatnamálum?

Sérfræðingur í vatnamálum 

Hafrannsóknastofnun óskar eftir að ráða til starfa sérfræðing í vatnamálum. Starfið felur í sér vinnu við ýmis verkefni sem tengjast lögum um stjórn vatnamála en stofnunin veitir bæði ráðgjöf þar um auk þess að sinna rannsóknum og vöktun. Starfið mun einkum felast í ráðgjafahluta málaflokksins. Bent er á vefsvæði á vegum Umhverfisstofnunar um vatnamál, vatn.is, fyrir þá sem vilja kynna sér málaflokkinn betur.

Lögð er áhersla á að ráða lausnamiðaðan einstakling sem hefur góða færni í að vinna sjálfstætt og í teymi. Felur starfið einkum í sér vinnu með texta. Horft verður til umsækjenda með ýmsa menntun eða starfsreynslu sem nýtist í starfi, s.s. á sviði umhverfisfræði, verkfræði, líffræði o.s.frv.

Helstu verkefni og ábyrgð

 Greining á efni um vatnamál á íslensku og erlendum tungumálum.

  • Ritun skýrslna og annara ráðgjafaskjala.

  • Virk þátttaka í teymi sem vinnur að úrlausnarefnum á sviði vatnamála.

Hæfniskröfur 

  • Háskólamenntun á sviði umhverfisfræði, verkfræði, líffræði eða skyldum greinum.

  • Góðir skipulags og samskiptahæfileikar.

  • Góð almenn tölvukunnátta.

  • Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og hæfni til að vinna í teymi.

  • Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku. Þekking á norðurlandamáli er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja:

  • Ítarleg ferilskrá.

  • Afrit af prófskírteinum.

  • Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.

  • Tilnefning a.m.k. tveggja meðmælenda.

  • Sótt er um starfið á Starfatorgi og er öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Hafrannsóknarstofnun áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur. Gerð er krafa um að umsækjendur hafi hreint sakavottorð.

Við ráðningu í störf hjá Hafrannsóknastofnun er tekið mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um.

Um stofnunina

Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, heyrir undir Matvælaráðuneytið og er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði haf- og vatnarannsókna. Stofnunin gegnir auk þess ráðgjafahlutverki um sjálfbæra nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Höfuðstöðvar stofnunarinnar eru í Hafnarfirði en auk þess eru starfsstöðvar vítt og breitt um landið, tilraunaeldisstöð og tvö rannsóknaskip. Hjá stofnuninni starfa að jafnaði um 185 manns í fjölbreyttum störfum.

Starfshlutfall er 100%, Umsóknarfrestur er til og með 04.04.2024

Gildi stofnunarinnar eru: Þekking - Samvinna - Þor

Nánari upplýsingar veita:  

Hrönn Egilsdóttir, hronn.egilsdottir@hafogvatn.is, Sími: 695 6705 og  Berglind Björk Hreinsdóttir, berglind.bjork.hreinsdottir@hafogvatn.is


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?