Hafrannsóknastofnun auglýsir stöðu nýdoktors til tveggja ára. Starfið snýr að mati á því hvernig friðlýst hafsvæði geta dregið úr tapi á líffræðilegri fjölbreytni af mannavöldum.
Starfið er hluti af verkefninu NatuRE based SOLutions for sustainable use of high north marine biodiVersity and ecosystems sErvices (RESOLVE)", sem styrkt er af Biodiversa+, sem er evrópskt samstarf um líffræðilega fjölbreytni (European Biodiversity Partnership).
Markmið verkefnisins er að þróa nýja og alhliða matsaðferð við að greina áhrif náttúrumiðaðra lausna, með sérstaka áherslu á svæðisbundnar stjórnunaraðgerðir (friðlýsing hafsvæða). Aðferðin miðar að því að meta hvernig slíkar aðgerðir geta dregið úr tapi líffræðilegrar fjölbreytni, stuðlað að velferð mannsins og knúið áfram jákvæðar breytingar. Rannsóknir fara fram á Grænlandi, í Noregi og á Íslandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst í því að meta hversu vel net friðlýstra hafsvæða geta dregið úr tapi á líffræðilegri fjölbreytni sem rekja má til mannlegra athafna. Þetta verður gert með því að bera saman mynstur og þróun líffræðilegrar fjölbreytni fiska og botndýra innan og utan friðlýstra hafsvæða að teknu tilliti til loftslagsbreytinga. Rannsóknin mun nýta bæði flokkunarlega og virknimiðaða vísa til að greina líffræðilega fjölbreytt svæði, meta hvernig þau bregðast við breytilegum loftslagsaðstæðum og kanna umfang áhrifa mannlegra þátta.
-
Doktorsgráða í sjávarlíffræði og/eða tölfræði eða skyldum greinum.
-
Þekking og reynsla í gagnagreiningu og verkefnastjórnun.
-
Reynslu af fjölþáttagreiningum, rúmfræðilíkönum og forritunarhæfni í R og greiningum (t.d. GIS verkfærum).
-
Reynsla af líkanagerð fyrir tíma- og rúmlæga útbreiðslu sjávarlífvera.
-
þekking á nýjustu líkanaaðferðum kostur.
-
Reynsla af miðlun vísindalegra niðurstaða svo sem á fundum og ráðstefnum.
-
Góð færni í ritun vísindagreina.
-
Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
-
Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar.
-
Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.
Umsókninni skal fylgja:
Athugið:
-
Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina.
-
Hafrannsóknarstofnun áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
-
Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.
-
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Við ráðningu í störf við Hafrannsóknastofnun er tekið mið af jafnréttisstefnu Hafrannsóknastofnunar.
Sótt er um í gegnum starfatorg
Um stofnunina
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, heyrir undir Atvinnuvegaráðuneytið og er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði hafs- og vatnarannsókna. Stofnunin gegnir auk þess ráðgjafahlutverki um sjálfbæra nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Starfsemin felst einkum í fjölbreyttum rannsóknum og ráðgjafastarfi sem oft felur í sér innlent og alþjóðlegt samstarf við háskóla eða aðrar rannsóknastofnanir.. Stofnunin rekur auk höfuðstöðvar í Hafnarfirði starfsstöðvar vítt og breytt um landið, tilraunaeldisstöð og tvö rannsóknaskip. Hjá stofnuninni starfa að jafnaði um 200 manns í fjölbreyttum störfum.
Gildi Hafrannsóknastofnunar eru: Þekking - Samvinna - Þor
Umsóknarfrestur er til og með 16.02.2026
Nánari upplýsingar veitir