Hvað á LIFE Icewater eiginlega að heita á íslensku? Nú er tækifærið til að koma með hugmynd!
LIFE Icewater er stórt samstarfsverkefni sem styður við framkvæmd vatnaáætlunar á Íslandi. Innan verkefnisins er meðal annars unnið að:
- vöktun og aukinni þekkingu á ástandi vatns,
- bættri fráveitu og minni mengun,
- sjálfbærri nýtingu vatns,
- vernd og endurheimt vatnavistkerfa,
- eflingu stjórnsýslu og samstarfs um vatnamál,
- fræðslu og miðlun um vatnamál.
Nú leitum við að íslensku heiti sem nær vel utan um verkefnið. Nafni sem er lipurt, eftirminnilegt og hentar vel í miðlun og kynningu.
Opið er fyrir tillögur 24.–30. ágúst. Vinsamlega sendu inn þína tillögu á þessu eyðublaði.
Að keppni lokinni fer valnefnd yfir tillögurnar og velur það heiti sem best þykir henta verkefninu. Í nefndinni sitja fulltrúar þeirra stofnana sem koma að gerð og framkvæmd vatnaáætlunar: Veðurstofu Íslands, Náttúrufræðistofnunar, Hafrannsóknastofnunar og Umhverfis- og orkustofnunar, auk Önnu Sigríðar Þráinsdóttur, málfarsráðunautar RÚV. Tillögurnar verða lagðar fyrir nefndina án upplýsinga um hver sendi þær inn.
Sigurhugmyndin verður verðlaunuð með gjafabréfi í Reykjaböðum, nýju baðlóni við jaðar Hveragerðis.