Eldislax
Matvælastofnun, Fiskistofa og Hafrannsóknastofnun hafa unnið saman að rannsóknum og veiði á meintum eldislöxum í nokkrum ám undanfarna daga.
Samtals hafa 19 laxar úr ám á Vestur- og Norðurlandi verið sendir í erfðagreiningu. Niðurstöður eru komnar úr greiningu 11 laxa sem veiddir voru í Haukadalsá daganna 14. og 15. ágúst sl. og reyndust 8 af þeim villtir en staðfest er að þrír laxar eru úr eldi. Átta laxar eru enn í greiningarferli, þar af sjö sem norskir kafarar söfnuðu.
Staðan ekki talin vera alvarleg
Tilkynning varðandi tvo laxa barst um helgina frá umræddu svæði. Þó svo að ekki sé æskilegt að eldislaxar finnist í ám er núverandi staða ekki talin vera alvarleg þar sem fáir eldislaxar hafa veiðst. Mikilvægt er að fylgjast vel með því hvort fleiri laxar með eldiseinkenni komi fram í ám og veiðimenn eru sérstaklega beðnir að vera vakandi yfir eldiseinkennum á veiddum löxum, sjá hér.
Ef lax með eldiseinkenni veiðist er þess áfram óskað að veiðiaðili skili fisknum í heilu lagi til Hafrannsóknastofnunar til rannsókna og erfðagreiningar.
Stofnanirnar munu í samstarfi birta frekari fréttir eftir því sem ný gögn berast og sér í lagi ef mat á alvarleika stöðunnar breytist.