Einar í Nesi EA 49 til sölu

Bátur Hafrannsóknastofnunar, Einar í Nesi EA-49, er til sölu hjá Skipamiðluninni Hvammi á Akureyri.

Um er að ræða trefjaplastbát af gerðinni Gáski 1000 sem var smíðaður af Mótun árið 1988.

Óskað er eftir tilboðum í bátinn og rennur tilboðsfrestur út 3. nóvember nk.

Nánari upplýsingar má nálgast á vef skipamiðlunarinnar.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?