Ástand sjávar í vetur

Ástand sjávar í vetur

Rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson var í sjórannsóknaleiðangri á miðunum umhverfis landið 8. -20. febrúar síðastliðinn.

Leiðangurinn var þáttur í gagnasöfnun í verkefninu “Ástand sjávar” en markmið þess er að fylgjast með breytingum á umhverfisaðstæðum á Íslandsmiðum. Frá því um 1950 hafa farið fram mælingar á hita og seltu á ákveðnum stöðum á landgrunninu að vori eða í byrjun sumars. Um 1970 var farið að mæla endurtekið á þessum föstu mælistöðvum, oftast fjórum sinnum á ári, í febrúar-mars, maí-júní, ágúst-september og í október-nóvember. Stöðvarnar mynda línur eða snið út frá landinu sem eru flest nefnd eftir kennileitum á landi en í leiðangrinum í febrúar var mælt á 72 stöðvum (1. mynd).

Sjávarhiti (°C) á 50 m dýpi í hafinu umhverfis Ísland, í febrúar 2023.

  1. mynd. Sjávarhiti (°C) á 50 m dýpi í hafinu umhverfis Ísland, í febrúar 2023. Punktarnir sýna mælistöðvarnar.

Helstu niðurstöður voru þessar:

Sjávarhiti (2. mynd) í efstu 200 metrum sjávar í hlýsjónum úti fyrir Suður- og Vesturlandi var á bilinu 7,1-8,2°C sem er vel yfir meðaltali viðmiðunartímabilsins 1991-2020 líkt og verið hefur flest undanfarin ár. Seltan var undir meðaltali viðmiðunartímabilsins en hún hefur farið hægt vaxandi undanfarin ár frá lágmarki sem mældist árið 2018. Þetta bendir til að hlýsjórinn að sunnan hafi verið með svipuðum styrk og undanfarin ár.

Frávik meðalhita Selvogsbanka

Frávik meðalseltu Selvogsbanka

  1. Frávik meðalhita og meðalseltu í efstu 200 metrum sjávar á stöðvum 3-5 á Selvogsbanka frá meðaltali áranna 1991-2020.

Hiti og selta úti fyrir Norðurlandi (3. mynd) voru nálægt meðaltali viðmiðunartímabilsins 1991-2020 en hiti í efri lögum úti fyrir Norðurlandi var á bilinu 2-4°C og bæði hiti og selta höfðu hækkað lítillega miðað við seinustu þrjú ár.

Norðaustan- og austanlands var hiti á bilinu 0-3 °C í efstu lögum sjávarins bæði yfir landgrunninu og utan þess, nærri meðallagi viðmiðunartímabilsins fyrir þennan árstíma en selta á þessu svæði var töluvert lægri en meðalselta viðmiðunartímabilsins.

Frávik meðalhita Siglunesi

Frávik meðalseltu Siglunesi

  1. mynd. Frávik meðalhita og meðalseltu í efstu 200 metrum sjávar á stöðvum 2-4 á Siglunesi frá meðaltali áranna 1991-2020.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?