Áhyggjur af gangi humarveiða

Áhyggjur af gangi humarveiða

Í byrjun vikunnar var haldinn samráðsfundur um humarrannsóknir, sem hagsmunaaðilar í humarveiðum og fulltrúar Hafrannsóknastofnunar sóttu. Upplifun skipstjóra og útgerðarmanna humarbáta var samhljóma áliti Hafrannsóknastofnunar hvað varðar ástand humarstofnsins. 

Á fundinum lýstu skipstjórnarmenn gangi humarveiða og sýn sinni á stöðu stofnsins. Voru þeir sammála um að veiðar væru erfiðari en oft áður og veiði mun minni á hefðbundinni humarslóð. Þá kom fram að smáhumar vantaði að mestu leiti í veiðina. Fulltrúar Hafrannsóknastofnunar kynntu mat sitt á ástandi stofnsins, sem bar ágætlega saman við framsögu skipstjórnarmanna. Fundarfólk var sammála um að meiri rannsóknir þyrfti til að skilja ástæður þess að nýliðun humars hefur hrunið á undanförnum árum.

Skipstjórnarmönnum voru kynntar nýjar aðferðir við stofnmat humars, sem ganga út á að mynda botninn og telja humarholur. Jafnframt voru niðurstöður rannsókna á veiðarfærum kynntar, sem og mat á tíðni ummerkja og magni botnsets sem þyrlast upp af völdum togveiðarfæra.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?