Opin ráðstefna um loðnurannsóknir

Ljósm. Sigurður Þór Jónsson Ljósm. Sigurður Þór Jónsson

 

 

Upptaka af erindunum:

Föstudaginn 10. nóvember verður ráðstefna hjá Hafrannsóknastofnun um afrakstur átaksverkefnis um loðnurannsóknir.

Verkefnið hefur verið í gangi síðan 2018 og verið á sérstökum fjárlögum til stofnunarinnar.

Dagskráin byrjar kl. 9:00 og lýkur um kl. 15:30. Helstu niðurstöður 15 rannsóknaverkefna verða kynnt á ráðstefnunni.

Ráðstefnan verður í húsi Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði og er opin öllum. Ráðstefnunni verður einnig streymt á Youtube rás stofnunarinnar.

Dagskráin

09:15 - 09:20 Setningarávarp

09:20 - 09:30 Kynning á aðdraganda rannsóknaátaksins

Langtímabreytingar í útbreiðslu og lífssöguþáttum

  • 09:30 - 09:45 Gönguleið og tímasetning loðnugangna í ríflega aldarfjórðung greindar út frá veiðidagbókum
  • 09:45 - 10:00 Breytingar á útbreiðslu loðnu á svæðinu á milli Íslands, Austur-Grænlands og Jan Mayen af völdum loftslagasbreytinga
  • 10:00 - 10:15 Þróun á lífssögu loðnu samfara breyttri útbreiðslu

10:15 - 10:30 Kaffihlé

Hrygning og fyrstu lífssöguskeið

  • 10:30 - 10:45 Umhverfisáhrif á dreifingu loðnulirfa
  • 10:45 - 11:00 Loðnurannsóknir í tilraunaeldisstöð Hafrannsóknastofnunar í Grindavík
  • 11:00 - 11:15 Lagrangísk agna-reks-nálgun til að rekja lirfur aftur að hrygningu

Fæðuvistfræði

  • 11:15 - 11:30 Fæða loðnu á nýrri fæðuslóð
  • 11:30 - 11:45 Dreifing loðnu í mismunandi sjógerðum við austur-Grænland á fæðutíma að haustlagi

Tengsl afræningja og bráðar

  • 11:45 -12:00 Mikilvægi loðnu í fæðu þorsks á íslenska landgrunninu

12:00 - 13:00 Hádegishlé

  • 13:00 - 13:15 Loðna og hnísa – tengsl bráðar og afræninga á Íslandsmiðum
  • 13:15 - 13:30 Samband útbreiðslu hvala og loðnu við austur Grænland að hausti

Stofnmat

  • 13:30 - 13:45 Sannprófun kynþroskagreininga á loðnu
  • 13:45 - 14:00 Áhrif lóðrétts fars og lífeðlisfræðilegra þátta á endurvarpsstyrk loðnu

14:00 - 14:15 Kaffihlé

  • 14:15 - 14:30 Rýni á ráðgjöf loðnustofnsins

Samþætting niðurstaðna

  • 14:30 - 14:45 Loðna á tímum umhverfisbreytinga
  • 14:45 - 15:00 Almennar umræður, samantekt, ráðstefnuslit

Skýrslan á íslensku.

Skýrslunni, greinum skýrslunnar og glærum kynninganna verður deilt hér.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?