Lítið af loðnu norðan lands

Árni Friðriksson við mælingar innan um “pönnukökuís” í Grænlandssundi. 
Ljósm. Birkir Bárðarson. Árni Friðriksson við mælingar innan um “pönnukökuís” í Grænlandssundi.
Ljósm. Birkir Bárðarson.

Rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson héldu til loðnumælinga laugardaginn 9. desember.

Mælingar leiðangursins hafa leitt í ljós að áfram verður ráðgjöf um engar veiðar. 

Yfirferð Árna var með landgrunnsbrúninni út af Vestfjörðum og út í Grænlandssund eins og hafís leyfði en Bjarni fór með landgrunnsbrúninni út af Norðurlandi.

Dreifing og magn metið með bergmálsmælingum

Markmið leiðangursins var að meta magn og dreifingu loðnu sem gengið hefur að íslenska landgrunninu í desember. Magnið er metið með bergmálsmælingum og sjá má dreifingu mælinga á mynd 1, hér fyrir neðan.  

Með því fást mikilvægar upplýsingar fyrir tímasetningu og umfang á mælingum á stofninum í janúar og febrúar sem munu gefa lokaráðgjöf fyrir loðnuveiðar 2023/2024. Stofnmæling í september síðastliðinn leiddi til þess að ekki var mælt með veiðum.

Þessar rannsóknir Hafrannsóknastofnunar voru að frumkvæði og kostaðar af útgerðum uppsjávarveiðiskipa. 

Áfram ráðgjöf um engar veiðar

Rannsóknaskipin eru nú á leið til hafnar og verið er að vinna úr gögnum leiðangursins. Það er þó ljóst að það magn sem mældist í þessari yfirferð mun ekki breyta fyrri ráðgjöf um engar veiðar. Aðeins lítill hluti veiðistofnsins var kominn á yfirferðasvæðið miðað við mælingar fyrr í haust.

Leiðangurinn gekk vel

Framvindan var nokkuð greið enda náðu skipin saman og kláruðu yfirferðina seinni partinn í gær eins og sjá má á kortinu hér (skip.hafro.is). Útbreiðsla hafíss hindraði yfirferðina talsvert til norðurs.

Vestan til á rannsóknasvæðinu var mest af ungloðnu. Hún var þó aðeins blönduð kynþroska loðnu sem myndar veiðistofn á yfirstandandi vertíð.

Kynþroska loðna fannst utan við landgrunnsbrúnina út af Strandagrunni og við Kolbeinseyjarhrygg. Þar var um lítið magn að ræða.

Veiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson hafði, í forkönnun sinni fyrir Norðausturlandi viku fyrr, einnig orðið var við lítilsháttar magn loðnu rétt austan Kolbeinseyjarhryggjar en ekki séð neitt austan við það.

Mynd 1. Bergmálsgildi loðnu í desember 2023 samkvæmt mælingum Hafrannsóknastofnunar ásamt leiðangurslínum RS Árna Friðrikssonar (rauðar) og RS Bjarna Sæmundssonar (bláar).

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?