Hækkun loðnuráðgjafar væntanleg á næstu dögum

Leiðarlínur Árna Friðrikssonar 12.-21. febrúar ásamt dreifingu hafíss norðvestan við Ísland Leiðarlínur Árna Friðrikssonar 12.-21. febrúar ásamt dreifingu hafíss norðvestan við Ísland

Yfirferð rannsóknarskipa í mælingum á stærð loðnustofnsins í janúar síðastliðnum norðvestan við landið var takmörkuð vegna hafíss á svæðinu. Við kynningu á breyttri veiðráðgjöf í kjölfar þess leiðangurs, boðaði Hafrannsóknastofnunin að farið yrði til mælinga á því svæði seinna með það fyrir augum að kanna betur norðvesturmið með tilliti til þess hvort ómældur stofnhluti hafi gengið inn á svæðið.

Rannsóknarskipið Árni Friðriksson sinnti þessum rannsóknum dagana 12. - 21. febrúar. Endalegar niðurstöður leiðangursins liggja ekki fyrir og ný veiðiráðgjöf verður því vart tilbúin fyrr en í byrjun næstu viku. Í ljósi þess að núna er langt liðið á loðnuvertíðina vill Hafrannsóknastofnun upplýsa að umtalsvert magn af hrygningarloðnu mældist á landgrunninu norður af Húnaflóa sem var ekki komið á mælisvæðið þegar fyrri mæling fór fram. Ljóst er að mælingar undanfarinna daga munu leiða til hækkunar á tillögum um hámarksafla á loðnuvertíðinni 2022/2023. Varlega áætlað má gera ráð fyrir yfir 100 þúsund tonna hækkun ráðlags hámarksafla.

Loðnan sem mældist úti fyrir Húnaflóa var 3 – 4 ára loðna sem komin var tiltölulega nálægt hrygningu, með tæplega 16% hrognafyllingu syðst en tæp 12% utar. Það er mat Hafrannsóknastofnunar að þessi loðna muni líklegast hrygna á þessum slóðum. Út frá varúðarðarsjónarmiðum hvetur stofnunin til þess að afli sem nemur viðbótarráðgjöf verði veiddur sem mest á þeim slóðum. Með því að ganga ekki of nærri þeirri loðnu sem hrygnir við vestur- og suðurströnd landsins væri verið að leitast við að viðhalda líffræðilegum fjölbreytileika innan stofnsins og minnka möguleg neikvæð áhrif veiða á nýliðun. Með öðrum orðum, mælst er til þess að loðnuveiðarnar endurspegli á einhvern hátt dreifingu stofnsins eftir hrygningarsvæðum.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?